Forsetasaga Ólafs Ragnars Grímssonar er auðskrifuð. Hann var strigakjaftur stjórnmálanna númer eitt, þegar hann bauð sig fram. Með aðstoð langhæfustu spunakarlanna taldi hann þjóðinni trú um, að hann væri forsetaframbjóðandi hennar. Eins konar andófsmaður gegn pólitík. Fíflin trúðu honum eins og nýju neti. Sem forseti tók hann þann feil að gerast útrásarhöfðingi. Fór hamförum um heiminn til að mæra þá. Þegar þeir féllu í ónáð, féll hann líka í ónáð fíflanna. Gerðist þá sérfræðingur í áfallahjálp, fór um landið og predikaði líf að hætti Lao Tse. Tæplega verður hann aftur í framboði til forseta.
