Ótrúlegur Sigmundur Davíð

Punktar

Minnisblað Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur segir ekkert nýtt um gerðir brezku stjórnarinnar vegna IceSave reikninganna. Við erum ekki sátt við þær. Samt höfum við gengið frá samkomulagi um afgreiðslu málsins. Það gerðum við til að forðast meiri skaða. Vildum halda eðlilegum samskiptum við útlönd. Einkum þá, sem ætla að lána okkur peninga til að lifa af verstu misserin. Allt þetta var vitað fyrir löngu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir samt, að minnisblað Ingibjrgar Sólrúnar “tæti í sig grunnstoðirnar í málflutningi ríkisstjórnarinnar”. Hann er ótrúlegur, bullar út í eitt eins og venjulega.