Tímatalið hófst 28. marz 2009

Punktar

Bjarni Benediktsson hefur gleymt öllu, sem gerðist fyrir 28. marz. Þá mætti Davíð Oddsson á landsfund og reif sundur skýrslu endurreisnarhóps Vilhjálms Egilssonar. Þann dag hætti Flokkurinn dálæti á Evrópu, varð þjóðrembdur og vænisjúkur. Þann dag hætti Flokkurinn að vera sakbitinn út af bankahruninu og fór í harða afneitun. Bjarni Benediktsson gleymdi undirskrift sinni að braski með skýjaborgir í spilavítinu Macau. Gleymdi, að Sjóvá var rænt og ruplað til að koma þessu um kring. Gleymdi gjaldþroti Sjóvá og hvernig ríkið pungaði út tólf milljörðum til að forða bótasjóði almennings undan sukkinu.