Óskipulögð taugaveiklun

Punktar

Ömurleg er verkstjórn stjórnarsinna á Alþingi. Mæta þaulskipulögðu andófi minnihlutans með taugaveikluðum undanslætti og óskipulagðri eftirlátssemi. Dögum og vikum saman leyfa verkstjórar meirihlutans minnihlutanum að ráða ferðinni. Í gær var loks ákveðið að halda þolfund unz umræðunni um IceSave yrði lokið. Undir morgun var svo snúið af þeirri braut og fundi frestað fram undir hádegi. Verkstjórar meirihlutans virðast ekki hafa bein í nefinu til að stjórna neinu. Þetta er auðvitað tóm vitleysa. Láta verður hart mæta hörðu. Óskipulögð taugaveiklun er ávísun á yfirvofandi fall meirihlutans.