Níu áratuga gömul vænisýki

Punktar

Guðmundur Hálfdánarson prófessor bendir réttilega á, að ríki eru einmitt í Evrópusambandinu til að verja fullveldi sitt. Að vísu er ein undantekning, Bretland. Þar telja menn sambandinu flest til foráttu, eins og á Íslandi, einkum skort á fullveldi. Annars staðar eru menn sáttir við fullveldi sitt, telja það ekki skaðast af aðildinni. Eindregnast telja nýju ríkin í Austur-Evrópu, að Evrópusambandið sé hluti af fullveldi þeirra. Guðmundur rakti í fyrirlestrinum, að frá upphafi fullveldis hafi stöðugur fjöldi Íslendinga óttazt að glata fullveldinu. “Umsátrið” er níu áratuga gömul vænisýki.