Jean-Claude Trichet, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu, hringdi ævareiður í Davíð Oddsson í apríllok 2008. Sagði íslenzku bankana stunda fjárglæfra, sem yrði að stöðva. Davíð gerði ekkert í málinu. Hann herti ekki á frystingunni, heldur lagði hana beinlínis niður. Losaði þannig um hömlur á bönkunum. Hann bannaði bönkunum ekki neitt. En fór í þess stað að lána þeim villt og galið án haldbærra veða. Enginn seðlabanki í heiminum gerði slíkt. Þannig varð Seðlabankinn gjaldþrota upp á 300 milljarða, sem ríkið varð að taka á sig. Það er Davíðs-tjónið, sem nú er verið að leggja á ævareiða skattgreiðendur.
