Á dauða okkar áttum við von, en ekki þessum ósköpum. Handvaldir bankastjórar ríkisstjórnarinnar eru að endurreisa útrásarvíkingana. Gefa fíflunum eftir milljarðaskuldir og afhenda þeim fyrirtækin á nýjan leik. Mönnum, sem hafa sannað vangetu sína í rekstri á stórkarlalegan hátt. Auðvitað ætti sumt af þessum fyrirtækjum að vera rekstrarhæft hjá nýjum eigendum og stjórnendum. En að endurskapa fortíðina, hverjum dettur slíkt í hug? Til slíks þarf Finn Sveinbjörnsson og Ásmund Stefánsson. Hvað segja skaðbrenndir útlendingar um siðferði Íslendinga, þegar útrásarvíkingarnir eru aftur komnir á stallinn?
