Sammála Lilju Mósesdóttur

Punktar

Ég er sammála Lilju Mósesdóttur. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn rauf samkomulag við Ísland. Með töfum á afgreiðslu lána vegna þrýstings frá ríkisstjórnum Bretlands og Hollands olli sjóðurinn okkur miklu tjóni. Lánið sjálft skipti ekki mestu máli, heldur orðsporið út á við. Sjóðurinn auglýsti beinlínis, að Ísland væri fjárhagslega ekki í lagi. Jafnframt laug sjóðurinn ítrekað um raunverulega orsök tafanna. Vegna þessa slls þarf að semja upp á nýtt við sjóðinn. Um örari vaxtalækkanir, um lánalínur í stað lána með vöxtum, og um minni niðurskurð velferðar. Afgreiðsla IceSave á að liðka fyrir endurskoðun.