Að ósk Mannréttindadómstóls Evrópu frestaði dómsmálaráðuneytið áður boðaðri frávísun hælisleitanda til Grikklands. Dómstóllinn notaði bara part úr degi frá komu kærunnar til að kveða upp úrskurð sinn. Svo augljóst var gerræði dómsmálaráðuneytisins. Efldist á tíma Björns Bjarnasonar sem ráðherra og Rögnu Árnadóttur sem ráðuneytisstjóra. Þá var byggð upp gríðarlega fjölmenn Útlendingastofnun, full af lagatæknum, sem leita lagakróka til að losna við hælisleitendur. Nú er Ragna ráðherra í vinstri stjórn og heldur áfram að ofsækja aumingja. Svo mjög, að vekur snörp viðbrögð Mannréttindadómstólsins.
