Er ekki hægt að senda Davíð Oddssyni reikning fyrir 300 milljörðum? Börnum okkar mundi muna um það. Aurarnir, sem Davíð fleygði í bankana, þegar hann vissi, að þeir römbuðu á barmi gjaldþrots. Ríkissjóður tók yfir þessa skuld, svo að Seðlabankinn yrði ekki gjaldþrota. Er ekki hægt að senda Geir Haarde reikning fyrir 280 milljörðum? Börnum okkar mundi muna um það. Aurarnir, sem Geir fleygði í banka og sjóði, er þeir fóru á hausinn í hruninu. Það er féð, sem afabörnin verða að borga fyrir siðlausan Sjálfstæðisflokk, sem er nú án sektarkendar. Áður en kemur að greiðslum í IceSave Davíðs og Björgólfsfeðga.
