Leiðir eru og verða opnar

Punktar

Hafa má áhyggjur af, að svissneski auðmaðurinn Rudolf Lamprecht loki jörðum, sem hann kaupir í Mýrdal og Geithellnadal. Hins vegar er rangt, að hann megi það. Samkvæmt Járnsíðu og lögum frá 1999 er frjáls umgengni um lönd manna. Ekki má girða án hliða yfir leiðir fólks eða grafa skurði gegnum þær. Vírinn má klippa og hestamenn gera það hiklaust, ef hann er ólöglegur. Ef Lamprecht reynir að loka leiðinni með Vatnsá eða fjallabaksleiðinni að Kerlingardal, verður vírinn bara klipptur. Ég á fína töng. Lamprecht flytur ekki svissnesk lög hingað. Ekki frekar en Seðlabankinn gat lokað Holtsdal fyrir ferðafólki.