Evrópski fjárfestingarbankinn neitar að lána Orkuveitunni þrjátíu milljarða fyrir Hellisheiðarvirkjun. Orkuveitan er orðin mjög skuldsett, borgar tugi milljarða í vexti og getur ekki lagt meira á orkunotendur. Hún hefur enga fjármögnun fyrir Hverahlíðarvirkjun. Bitruvirkjun er í uppnámi vegna slæmra umhverfisáhrifa í Hveragerði. Orkuveitan er því engan veginn í stakk búin til að selja rafmagn til álbræðslu í Helguvík. Þar á ofan efast margir um, að fjármagnsfrekar framkvæmdir séu góð samkeppni við vinnufrekar framkvæmdir á erfiðum tíma. Reykjanesbær er því að spreða útsvarsfénu í álbræðslu-óra.
