Áhrifalaus hræðsluáróður

Punktar

Ekkert bendir til, að hryllingslýsingar forsætisráðuneytisins hafi áhrif. Þeir, sem eru andvígir Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og IceSave samningum, blása bara á þær. Enda er marklaust að tyggja eins og páfagaukur gömul og úrelt boðorð. Ekkert bendir heldur til, að minnihlutinn í vinstri grænum taki mark á hræðsluáróðri. Miklu frekar er hann líklegur til að festa í sessi þann skoðanaágreining, sem er í samfélaginu. Nýtt frumvarp um IceSave verður fellt með atkvæðum allrar stjórnarandstöðunnar og nokkurra þingmanna vinstri grænna. Ríkisstjórnin á að spara sér hneisuna. Hún á að líta út úr rammanum.