Samið við gerla

Greinar

Nýlega komst upp um svindl Mjólkursamsölunnar í stimplun mjólkur. Í stað þess að stimpla síðasta leyfilega söludag þrjá daga fram í tímann komst samsalan upp í átta daga.

Mjólkursamsalan afsakar sig með helgarfríum starfsfólks. Virðist svo sem hún hafi náð samkomulagi við gerlana, að þeir starfi ekki um helgar. Kannski er það fyrir milligöngu Heilbrigðiseftirlitsins, sem ekki hefur enn kært samsöluna fyrir brot á reglugerð, þegar þetta er ritað.

Á föstudaginn myndaði Dagblaðið stimplun mjólkur fimm daga fram í tímann og birtist sú mynd á laugardaginn. Fjórum dögum síðar var þessi mjólk orðin súr. Virðist svo sem Mjólkursamsalan og Heilbrigðiseftirlitið hafi ekki nægan aga á gerlum þeim, sem þessar stofnanir semja við!

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið