Hálfdauður lifnar við

Greinar

Sigur Vilmundar Gylfasonar í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík er einkennistákn þess, hvernig prófkjörin hafa vakið hálfdauðan stjórnmálaflokk til lífsins. Sigurinn er öflug staðfesting þess, að hinir flokkarnir mega stórlega vara sig á Alþýðuflokknum í kosningunum á næsta ári.

Vilmundur útrýmir ekki siðleysi og spillingu, þótt hann verði einn af sextíu þingmönnum. En hann verður eigi að síður skemmtileg sending þreyttu og dofnu alþingi. Engin vanþörf er á, að ýfðir verði upp lygnir pollar. Það verður spennandi að fylgjast með frammistöðu hans á þingi næsta haust.

Alþýðuflokkurinn rambaði á barmi andláts í síðustu kosningum með aðeins einn kjördæmakosinn þingmann og fjóra uppbótarmenn. Að loknum þeim kosningum heyrðust víða þær raddir, að næst mundi Alþýðuflokkurinn þurrkast út af þingi.

En neyðin kennir naktri konu að spinna. Meðal annars vegna tillagna og áróðurs Vilmundar var ákveðið að opna Alþýðuflokkinn og reyna að virkja óflokksbundið fólk til þátttöku í honum. Prófkjörin eru veigamesti þáttur þessarar viðleitni. Þau hafa verið opin öllum þeim, sem ekki eru bundnir í öðrum stjórnmálaflokkum.

Prófkjörin færðu líf í tuskurnar og gerðu Alþýðuflokkinn að einu helzta umræðuefni manna á þessu hausti. Hver kosningabaráttan rak aðra. Í Reykjaneskjördæmi felldi Kjartan Jóhannsson þingmanninn Jón Ármann Héðinsson. Á Suðurlandi staðfesti Magnús Magnússon vinsældir sínar. Á Norðurlandi eystra stóðst Bragi Sigurjónsson áhlaup Árna Gunnarssonar. Og nú síðast báru Benedikt Gröndal og Vilmundur Gylfason sigurorð af Eggert G. Þorsteinssyni í Reykjavík.

Ekki er unnt að sjá, að þessi mikla barátta hafi valdið klofningi í Alþýðuflokknum. Hinir sigruðu hafti viðurkennt leikreglurnar og lýst því yfir, að ekki verði lát á stuðningi þeirra við flokkinn.

Ekki er heldur unnt að sjá, að stuðningsmenn annarra flokka hafi ráðið úrslitum í prófkjörum Alþýðuflokksins. Engin dæmi hafa enn verið lögð fram því til stuðnings. Og allir sigurvegararnir eru gamalgrónir flokksmenn.

Sumir benda að vísu á grunsamlega mikla þátttöku í prófkjörunum. En því er til að svara, að fylgi flokka er ekki fasteign og á ekki að vera það. Stuðningsmönnum Alþýðuflokksins kann einfaldlega að hafa fjölgað á nýjan leik.

Helztu keppinautana í prófkjörum Alþýðuflokksins virðist ekki hafa skort áhugasama starfsmenn í kosningabaráttunni. Ef flokkurinn getur virkjað þessa starfskrafta í næstu kosningum, er hann aftur á framtíðarvegi eftir niðurlægingu síðustu ára.

Hæðnisyrði málgagna Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um prófkjör Alþýðuflokksins benda til taugaveiklunar, ekki sízt hjá þeim flokkum, þar sem fámennar klíkur ráða framboðum. Gustur um sali er eitur í beinum flokkseigendafélaga allra flokka.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið