Fín tillaga umbans

Punktar

Umboðsmaður neytenda leggur til, að felld verði niður opinber gjöld af litlum pökkum. Það eru einkum bækur og geisladiskar, sem margfaldast í verði í innflutningi vegna gjaldanna. Einkum leggst umsýslugjald þungt á litla pakka. Heilmikið batterí er rekið til að innheimta þetta rugl á kostnað fólks. Vitleysa af þessu tagi þekkist ekki í neinu nálægu landi. Umboðsmaður neytenda hefur oft komið með góðar hugmyndir og engin er betri en einmitt þessi. Hafa má til marks um vanhæfni íslenzkra ráðherra, að þessi gjöld skuli hafa viðgengizt til þessa. Áfram, umboðsmaður neytenda!