19da grein leynisamnings

Punktar

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn stjórnar landinu. Hann vill 18% stýrivexti. Þess vegna voru þeir hækkaðir í 18%. Við því er ekkert að gera. Þetta er samkvæmt 19du grein leynisamnings ríkisstjórnarinnar við sjóðinn. Hún gat auðvitað neitað yfirtöku sjóðsins, en gerði það ekki. Við sitjum bara í þeirri súpu. Sjóðurinn heimtaði svona líka hjá Suður-Kóreu 1997 og setti landið á hausinn. Hann hefur ekkert lært, enda skipaður trúarofstækisliði frá Chicago-háskólanum. Allt mun hér fara á sama veg og í Suður-Kóreu og sjóðurinn mun enn biðjast afsökunar. Þá má loks fara í björgunaraðgerðir.