0726 Fjárhagur tímarita

0726

Ritstjórn
Fjárhagur tímarita
Michael Robert Evans, The Layers of Magazine Editing, 2004

Útgáfa er fyrirtæki, sem þarf hagnað. Ritstjórar þurfa að vera þess meðvitaðir. Það er ekkert hræðilegt og þýðir einfaldlega, að hagnaður er einföld og meinlaus afleiðing þess, að þú virkar í umhverfinu.

William Whitworth, ritstjóri The Atlantic: “Ég veit aldrei með vissu, hvort við erum að standa okkur. Ég fæ hugmynd um það úr póstinum og með því að fylgjast með, hvort margir góðir höfundar vilja koma fram á síðum okkar.”

Ritstjórar reyna að endurheimta traust með því að vera í opinni og heiðarlegri sambúð með lesendum. Þú verður að játa mistök. Best er að játa það strax í næsta tölublaði. Þú ræður, hvort þú bætir við: “Blaðið harmar þessi mistök.”

Lesley Rogers, ritstjóri National Geographic Magazine: Við höfum notað stílbók frá 1962 og hún hefur verið á netinu síðan 1995. Stílnefnd ritstjórnar ákveður breytingar mánaðarlega. Milli funda ræða ritstjórar um réttan stíl í vafamálum.

Jeff Csatari, ritstjóri Men’s Health: Tímarit eiga að hafa hagnað. Ef þú selur ekki 40% af eintökum í lausasölu, ertu búinn að vera. Þú verður að láta forsíðuna virka, selja tímaritið. Þú verður að ná lesendum til að afla auglýsinga.

Csatari áfram: Þú verður að ná lesendum. Þú færð þá með því að láta þá hafa það, sem þeir vilja. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing eru þrír fætur á stóli tímarita. Þú getur ekki verið án neins þeirra.

Michael Bawaya, ritstjóri American Archeology: “Viðskiptadeildin hefur í raun engin áhrif á ritstjórnardeild blaðsins. En ég hef unnið við tímarit, þar sem enginn veggur var milli auglýsingadeildar og ritstjórnar.”

Steve Spence, ritstjóri Car and Driver: “Viðskiptadeild og ritstjórn eru ríki og kirkja. Auglýsingadeildin er ekki einu sinni í sama sveitarfélagi. Hún selur auglýsingar, við búum til efni, aldrei í samlögum við auglýsingar.”

Sum tímarit, einkum þau litlu, sameina útgáfustjórn og ritstjórn í einu starfi. Það er yfirleitt ekki heppilegt, af því að yfirleitt fara ekki saman í einni persónu hæfni til að reka gott fyrirtæki og hæfni til að ritstýra góðu tímariti.

Yfirleitt er veggur milli efnis og auglýsinga. Lesendur treysta ritstjórn til að færa þeim óhlutdrægar og heiðarlegar upplýsingar. Ef við kynntum vörur og þjónustu fyrir þá, sem borga, værum við að bregðast trausti.

Lesendur komast fljótt að því, ef tímaritið er málgagn nokkurra auðfyrirtækja. Þegar það gerist, fara þeir annað til að fá upplýsingar. Hins vegar mega auglýsingadeild og ritstjórn vita af verkefnum hins aðilans.

Á síðari árum hefur sums staðar rofnað þessi veggur. Þar hafa auglýsendur áhrif á efnisval tímarita, aðallega vegna fjárhagslegs þrýstings. Þar er skammtímagróði tekinn fram yfir langtímagróða, sem byggist á trausti lesenda.

Jon Wilson, ritstjóri Wooden Boat: Auglýsendur segja: “Ef þú skrifar um X, skulum við auglýsa.” Það er ótrúlegur þrýstingur á seljendur auglýsinga, sem hafa sölutengdar tekjur. Þeir missa sjónar á mun eigin hagsmuna og trausts blaðsins.”

Wilson áfram: Þess vegna er yfirleitt spenna milli auglýsingadeildar og ritstjórnar. Ef við færum að birta kynningarefni fyrir auglýsendur okkar, mundu áskrifendur okkar flýja í hrönnum.

1. Auglýsingar afla tekna, ritstjórnin eyðir þeim.
2. Þykkt tímarita fer eftir auglýsingum, 50%.
3. Auglýsingadeild vill góða sambúð við auglýsendur.
4. Ritstjórnarákvarðanir hafa áhrif á tekjur seljenda auglýsinga.

Dreifingin
1. Fríblöð. T.d. 50% afsláttur.
2. Bréf til markhópa. Lítill árangur.
3. Útvarpsauglýsingar. Dýrar.

4. Dagblaðaauglýsingar. Ódýrar, kúponar.
5. Auglýsingar í sjálfu tímaritinu. Lausir áskriftarkúponar.
6. Símaherferðir. Oft með tilboðum. Oft besta leiðin. En fólk tekur ekki síma.

Hlutverk þitt er að afla nýrra áskrifenda hraðar en þú tapar hinum gömlu.
1. Stöðugur áróður fyrir framhaldi áskriftar.
2. Boðin margra ára áskrift.
3. Boðin föst áskrift á krítarkorti.
4. Hlustað á lesendur.

Ritstjóri þarf að vita, hvaða vandamál steðja að tímaritinu og geta skýrt frá, til hvaða aðgerða hann hefur þegar gripið til að fást við þau. Fækkun áskrifenda er skýrasta dæmið, tölfræðilegur dómur um misheppnaða ritstjórn.

Michael Bawaya, ritstjóri American Arch eology: “Ef ég stend við markmið mín, er ég að standa mig. Ef lesendur senda hrósbréf til mín, forstjórinn hækkar kaupið mitt og tímaritið fær verðlaun, er ég sennilega að gera rétt.”

Sjá nánar: Michael Robert Evans, The Layers of Magazine Editing, 2004