0715 Samstarf I

0715

Ritstjórn
Samstarf I
Roy Peter Clark & Don Fry, Coaching Writers, 2. útgáfa, 2003

Vansæl staða:
*Þú forðast augnsamband.
*Þú velur vaktstjóra.
*Skilar sögunni á síðustu stund.
*Þú þrýstir einu til að fela annað.
*Þú ferð undan í flæmingi.
*Þú ferð framhjá stjóranum.
*Þú lýgur að ritstjóranum.

Höfundar hrósa:
*Takk. Næst skoða ég tölurnar.
*Góð fyrirsögn. Náði fókusnum.
*Millifærslan virkaði vel.
*Þakka þér fyrir að styðja mig.
*Þakka þér fyrir að leyfa áhættu.

Höfundar nálgast ritstjóra:
*Útskýra.
*Kvarta.
*Biðja um samræmi
Enginn segir ritstjórum, að þeir hafi rangt fyrir sér.

Að þjálfa ritstjóra:
*Hann tali meira við höfundana.
*Hann finni tíma til þess.
*Hann kveði menn ekki í kútinn.
*Hann sé örlátur á lof.
*Hann skrifi meira.

*Ritstjórar vilja ekki óvænt atriði.
*Hafðu gott samband við alla í húsinu.
*Þekktu prófarkalesara, hjálpaðu.
*Skrifaðu minnisblöð til manna.
*Bíddu ekki eftir viðbrögðum.
*Gerðu þér grein fyrir þrýstingi á ritstjóra.

Minnisatriði:
*Hrósaðu góðum lagfæringum.
*Komdu með uppástungur.
*Gerðu yfirmönnum viðvart.
*Vertu almennilegur við fólk.
*Skrifaðu minnisblöð.
*Leitaðu eftir svörun.
*Taktu ábyrgð á eigin ferli.

Margir prófarkalesarar tala aldrei við höfunda. Enda líta sumir höfundar á þá sem óvini.
Tölvupóstur kemur víða í stað mannlegra samskipta og spillir fyrir þjálfun fólks.
Nú geta yfirmenn lesið handrit meðan þau eru í vinnslu.

Til eru prótokollar um samskipti höfunda og yfirmanna. Þeir eru vafasamir, því að þeir setja form á það, sem á að renna sjálfkrafa. Sumt gagnlegt má þó finna í prótókollum þessum. Til dæmis:

Breytt án samráðs:
Stafsetning, ritvillur. Viðbætur. Klipping í rétta stærð. Stytting málsgreina. Brot á stílbók. Löguð tilvitnun. Brottfall texta sem varðar við lög. Samræming á hinum ýmsu textum greinar.

Samráð æskileg:
Holufylling. Tilfærsla málsgreinar. Tilfærsla kafla. Endurskoðun fyrirsagnar. Brottfall dónaskapar. Umorðun tilvitnunar.

Samráð nauðsynleg:
Niðurskurður fréttar. Breyttur inngangur. Aukin sanngirni. Löguð tilvitnun. Staðreynd breytt. Tóni breytt. Samræmi við eldri sögu. Skipti á myndum. Leiðrétting staðreynda. Viðtöl við heimildir. Hagsmunaárekstur. Frestun birtingar.

Prófarkalestur:
*Gleði sögunnar.
*Nákvæm tunga og stíll.
*Lærdómur er dreginn.
*Ritskoðuð orð, hljóð, myndir.
*Margt sagt í fáum orðum.
*Staða þín á ritstjórninni.
*Að lifa þetta af.

Minnisatriði:
*Texti batnar með prófarkalestri.
*Þeir bjarga starfsfólki daglega.
*Prótókollar hafa verið prófaðir.
*Þeir eru bara leiðbeinandi.
*Prófarkalesarar eru fólk.

Dæmi:
Hvað var í borgarstjórn í dag?
Hverjir voru í aðalhlutverkum?
Áttu von á einhverju óvenjulegu?
Eru til skjöl um málið?
Gott, hafðu samband, þegar þú kemur til baka.

Annað dæmi:
Hvað ertu með?
Um hvað er sagan?
Hverjir eru kaflarnir?
Hversu löng verður hún?
Hvenær fæ ég hana?
Gott, farðu í gang.

Oft er talað um þríþætt hlutverk:
*Leiðtogi.
*Stjórnandi.
*Þjálfari.

Leiðtoginn:
*Lýsir markmiðum. Hvers vegna.
*Skilgreinir áætlanir. Hvernig.
*Finnur og ræktar aðra stjóra.
*Byggir á grunni gilda.

Stjórnun:
*Ræður hæfileikafólk
*Lætur það hæfa fréttum.
*Skapar skilyrði árangurs.

Kovach og Rosenstiel um gildi í blaðamennsku:
Blaðamennska veitir fólki upplýsingar, sem gera það frjálst:
1. Skuldbinding hennar er fyrst og fremst við sannleikann.
2. Hollusta hennar er við borgarana.

3. Eðli hennar er leit að staðfestingum.
4. Hún er sjálfstæð gagnvart þeim, sem fjallað er um.
5. Hún er óháður vaktari valdsins.
6. Hún er torg gagnrýni og málamiðlana.

7. Hún reynir að gera það mikilvæga áhugavert og viðeigandi.
8. Hún er víðtæk og í réttum hlutföllum.
9. Hún má beita eigin samvisku.

Sjá nánar:
Roy Peter Clark & Don Fry, Coaching Writers, 2. útgáfa, 2003