0704 Yfirmaður II

0704

Ritstjórn
Yfirmaður II
Foster Davis & Karen F. Dunlap
The Effective Editor, 2000

Þegar þú hefur tekið ábyrgð á verkgæðum annarra, skiptir starf þitt máli á nýjan hátt. Skipulagslaus yfirmennska heftir árangur allra hinna.
Tvær einfaldar reglur:
* Gerðu það, sem þú segist gera.
* Vertu þar, sem þú segist vera.

Skipulag gefur þér meiri tíma með því að spara þér að sóa honum. Skipulagning felst í að temja sér ákveðnar vinnureglur. Þú flokkar atriði á tvennan hátt:
* Eftir málefni.
* Eftir tíma.

Þú þarft þrjú vinnutæki:
* Dagbók, flytjanleg
* Minnisbók, flytjanleg
* Skjalaskápur
Byrjaðu á hefbundnu vinnutæki og farðu síðan í stafrænt, þegar þú ert farinn að átta þig á skipulagi.

Gott er að vera með dagbók og minnisbók, sem fara vel í vasa. Þú þarft að skrifa niður hluti, þótt þú sért ekki við skrifborðið. Ekki nota borðdagbók. Best er að hafa bók, sem í senn er dagbók og minnisbók. Ef hún verður of lítil, má líma inn litla gula miða.

Notaðu dagbókina, minnisbókina og skjalaskápinn daglega. Skrifaðu atriði niður sí og æ. Ef þú samþykkir eitthvað, skaltu skrifa það niður, í dagbókina eða minnisbókina. Mundu eftir gulu miðunum. Byrjaðu og endaðu hvern dag á minnisbókinni.

Allt frá fyrsta degi:
* Skrifaðu allt í dagatalið.
* Skrifaðu allt í minnislistann.
* Farðu snemma í vinnu.
* Lærðu um starfsfólkið.
* Gakktu um og ræddu við fólkið.
Ekki forðast fólk á þeirri forsendu, að þú skiljir það ekki.

Fáðu þér umslög utan um A4. Merktu hvert umslag greinilega á fleiri en einum stað. Settu þau í þrjá bunka:
* Brýnt, á borðinu
* Þarft, á borðinu
* Allt hitt, í skápnum, skúffunni

Settu skjöl í tímaröð í hverja möppu, þau nýjustu efst. Flokka má efni möppunnar í þrjá hluta
* Póstur
* Fundir
* Heimildir
Haltu hverjum flokki saman með klemmu. Hver flokkur í tímaröð.

Ef skjölum fjölgar, má fjölga flokkum um þrjá:
* Fólk
* Stjórnsýsla
* Áætlanir
Öll skjöl, sem þú notar mikið, eiga að vera uppi á borði.
Mappa fyrir hvern starfsmann.

Gulu miðarnir voru bylting. Þegar pláss rennur út, seturðu inn gula miða í dagbók og minnisbók. Þú setur þá líka innan á kápu á möppum. Vertu alltaf með tíu gula miða í veski eða minnisbók. Skoðaðu dagbók og minnislista í 3-5 mín í lok hvers dags.

1. Fókusinn:
Minntu þig sífellt á markmið þín sem blaðamanns. Minntu þig á styrkleika þína og byggðu á þeim. Minntu þig á veikleika þína og reyndu að sigrast á þeim.

2. Valdform, sem hentar þér:
* Lögmætt vald
* Sérfræðingsvald
* Umbunarvald
* Fordæmisvald
* Gildishlaðið vald

a. Lögmætt vald:
Vald fylgir titli og ábyrgð. Sumir þola illa skipanir. Blaðamenn eru andvígir valdi. Þeir vilja heldur láta fylla sig eldmóði, sannfæra sig, hvetja sig. Lögmætt vald er góður grunnur, en ekki endastöð.

b. Sérfræðingsvald:
Sumir njóta virðingar vegna alls þess, sem þeir vita. Þeir eru ómissandi. Safnaðu valdi, sem byggist á þekkingu á faginu, sem þú getur deilt til annarra. Þú átt að vera sívaxandi miðstöð þekkingar.

c. Umbunarvald:
Þú hefur vald til að verðlauna fólk og refsa því. Notaðu þetta vald af vísdómi og sanngirni og þú reynist vera fínn stjórnandi. Sendu þakkarorð í tölvupósti. Talaðu þakkir svo hátt, að aðrir heyri. Eða “Ég veit, að þú getur betur.”

d. Fordæmisvald
Framkoma þín er til fyrirmyndar. Fólk leitar til þín og reynir að líkja eftir þér úr fjarlægð. Fordæmisvald byggist á persónulegum eiginleikum, sem njóta virðingar

e. Gildisvald:
Yfirmaðurinn er eins konar Gandhi eða móðir Teresa, ber gildi sín utan á sér. Hann stendur fastur á erfiðum tíma. Hann frestar frétt, sem ekki er nógu góð. Menn vita, að ekki er í myndinni að svindla á honum.

3. Takmörk þín:
Ritstjóri og yfirmaður á ritstjórn ber 20 hatta. Hugsaðu um takmörk þín. Hver eru aðalatriðin og hver eru aukaatriðin? Allir pressa á þig. Finndu jafnvægi og þá lætur þú ekki þrýsta þér. Veldu þér bardaga, sem hægt er að vinna

Hattar ritstjórans eru margir.
Svona endar dagurinn:
* Skrifar fréttina, þegar blaðamaðurinn hvarf.
* Fær umbrotsmanninn til að vera
* Passar að dreifingin sé ekki í dópinu.
* Fer í umbrotið kl.2 um nóttina.

20 hattar ritstjórans:
* Fréttamaður. Forvitinn. Spyrill.
* Þjálfari. Sbr. íþróttafélag.
* Kennari. Langtímamál.
* Nemandi. Lærðu af fólki.
* Sálfræðingur.
* Meistari, hljómsveitarstjóri.
* Lesandi. Lestu, lestu, lestu.

* Bókasafnsfræðingur.
* Diplómat. Segðu það fallega.
* Myndritstjóri.
* Grafaritstjóri.
* Verjandi blaðamanna.
* Sækjandi. Yfirheyrðu.
* Húmoristi.
* Trúboði blaðamennskunnar.

* Barnapassari.
* Skriftafaðir.
* Hit Man. Rekur menn.
* Ljósmóðir. Deadline=fæðing.
* Ráðningarstjóri. Góð sambönd.

Sjá nánar:
Foster Davis & Karen F. Dunlap
The Effective Editor, 2000