0714 Þjálfuð ýmis miðlun II

0714

Ritstjórn
Þjálfuð ýmis miðlun II
Roy Peter Clark & Don Fry, Coaching Writers, 2. útgáfa, 2003

Hús fyrir alla:
*Skoðaðu vefslóðir minnihluta.
*Hittu vandamálasérfræðinga.
*Heimsæktu stofnanir sérhópa.
*Gerðu lista yfir slíkar heimildir.
*Gerðu lista yfir talsmenn hópa.
*Heimsæktu matstofur hópanna.
*Vertu í netsambandi við fólk.

Konur kunna betur að hlusta en karlar. Þær sýna, að þær heyra. Karlar tala stundum án augnsambands eða hafa augun á reiki um salinn, í stað þess að horfa á viðmælandann.

Minnisatriði:
*”Það skulið þér og þeim gera.”
*Hafðu sýn yfir fjölbreytnina.
*Þjálfaðu sýn til minnihlutahópa.
*Vísaðu höfundum á talsmenn.
*Æfðu samtöl gegnum aðskilnað.

Nánast öll tækni við þjálfun í prentmiðlum gildir líka um þjálfun í ljósvakanum. En gott er fyrir þjálfara í einni tegund miðla að læra af þjálfurum í öðrum tegundum miðla.
“Ef þú mættir gera þetta aftur, hverju mundir þú þá breyta?”

“Hver er þín sterkasta hlið?” “Hvað gerir þú best?” “Hvers vegna finnst þér það?” “Á hvaða sviði viltu bæta þig?” “Hvers vegna?” Opnar hv-spurningar eru betri en lokaðar finnst-þér-ekki spurningar. Endaðu viðtöl alltaf á jákvæðum nótum.

Sjónvarpsfréttir eru teymisvinna. Ekki setja fyrir, heldur kalla eftir hugmyndum. Menn þjálfa hver annan, í bílnum. Ekki “standing-around-journalism”. Morguninn eftir er bezta skot gærdagsins sýnt til að hrósa því. Metnaður fárra smitar til hinna.

Í sjónvarpi þarf:
1. Margs konar skilafrestir.
2. Tvinna saman orð og myndir.
3. Setja umhverfishljóð inn.
4. Segja flókna sögu í stuttu máli.
5. Finna fókus.

Sittu á höndunum:
*Lestu ekki handritið strax.
*Spurðu í staðinn.
*”Segðu mér frá fréttinni.”
*Hlustaðu á svörin.
*Hvað sagði hann fyrst?
*Var hann ánægður?
*Áhyggjur af einhverju?

*Hvaða tíð notaði hann?
*Í hvaða röð sagði hann söguna?
*Hvar var komið þér að óvörum?
*Hver var aðalpersóna sögunnar?
*Hvert var aðalatriði sögunnar?
Einnig:

*Geturðu skrifað eins þú sagðir?
*Góð lýsing, geturðu byrjað þar?
*Þessi eina persóna, þarftu hinar?
*Hvar er þetta atriði í textanum?
*Þarftu að hringja út af þessu?
*Þarftu að fara úr þessum fókus?
*Hvernig tengirðu málsliðina?
*Geturðu endurtekið þetta aftar?

Nokkrar reglur:
*Fréttamaðurinn er ekki sagan.
*Fókus, fókus, fókus.
*Láttu bandið renna fyrst.
*Mundu að þú ert blaðamaður.
*Farðu nær. Einhver mun tala.
*Þegiðu og hlustaðu.
*Spurning, sem ekki er spurning.

*Gefðu tíma til að klippa, stýra.
*Hjálpaðu til við að bera dótið.
*Lærðu myndatöku.
*Farðu ekki með fjöldanum.
*Ekki láta sem þú sért í sjónvarpi.

Minnisatriði:
*Leyfðu fréttamanni að stýra.
*Spurðu hann opinna spurninga.
*Forðastu að dæma of snemma.
*Þjálfaðu á ritstjórnarfundum.
*Láttu myndatökumenn þjálfa.
*Ekki taka völdin á sögunni.
*Finndu tíma til þjálfunar.

Lengd hefur reynst tvíeggjuð á netinu. Allt flýtur í gögnum, en góður texti er ekki gögn. Beðið er um bókmenntalegan texta með innihaldi, anda og lit. “Rödd” er orð yfir allt, sem skapar þá ímynd, að höfundurinn sé að tala við lesandann á síðunni.

*Tungumál. Hlutlægt, sértækt.
*Tilvitnanir í glímukappa?
*Setningafræði. Stutt, einföld.
*Markmið og áhrif. Lífsreynsla.
*Tónn. Alvara eða gaman?
*Staða höfundar. Hlutdrægur?
*Málshættir eða einfaldleiki?
*Nálgun. Gömul eða ný?

Nýjar tegundir blaðamennsku:
*Prent plús. Bætt við myndum.
*Gagnvirkni. Smellt á hnappa.
*Myndasýningar á færibandi.
*Hljóðsögur.
*Myndasögur með frásögn.
*Lifandi umræða.

*Tengdu í aðrar sögur. Hypertext.
Ekki línulaga. Mósaík.
*Skrifaðu með mynd og hljóði.
Margmiðlun.
*Hvettu til gagnvirkni.
Getur leitt til nýrra heimilda.
*Breyttu langhundum í seríu.
Daglegar heimsóknir.

Seríur:
*Fókus dagsins á einni persónu.
*Aðgangur að nýrri heimild.
*Nægar sviptingar daglega.
*Verðlaun í endann.

*Byggðu safn og haltu því við.
Hægt er að birta skjöl.
*Nákvæmni og hraði.
Dagblöð skúbba á vefnum.
*Búðu til staðla.
Siðfræði. Hugsa út fyrir boxið.

Minnisatriði:
*Prófaðu stutta frásagnarlist.
*Prófaðu nýjar raddir.
*Prófaðu ný form blaðamennsku.
*Tengdu í aðrar slóðir.
*Skrifaðu með hljóði og mynd.
*Hvettu til gagnvirkni.
*Sameinaðu hraða og nákvæmni.

Sjá nánar:
Roy Peter Clark & Don Fry, Coaching Writers, 2. útgáfa, 2003