0703 Yfirmaður I

0703

Ritstjórn
Yfirmaður I
Foster Davis & Karen F. Dunlap
The Effective Editor, 2000

Þessi fyrirlestur er fyrir alla, sem vinna með höfundum. Einkum snúum við okkur að fréttastjórum, verkefnastjórum, vaktstjórum og efnisstjórum fjölmiðla, en einnig að bókaritstjórum, netstjórum, almannatenglastjórum. Við viljum hjálpa þeim að þjóna notendum.

Fáir stjórnendur á fjölmiðlum flytja með sér í starfið þá hæfni, sem þeir þurfa. Þeir velta fyrir sér, hvernig þeir geti lyft sér úr meðalmennsku. Þessi fyrirlestur á að gefa nokkur svör við því. Á dagblöðum, í tímaritum, í bókaútgáfum.

Þú lærir af:
1. Fordæmi frægra ritstjóra.
2. Samtali við starfsfólk.
3. Þeim, sem skrifa almennt um hlutverk stjórnenda.

Max Perkins: “Þú veist meira um höfund með því að hlusta á hann heldur en að lesa það, sem hann skrifar.” Oft eru ritstjórar uppteknir við að laga söguna, ekki höfundinn. Margir höfundar lesa sjálfa sig ekki yfir, af því að textinn er ekki lengur þeirra verk.

Þeir, sem eru umhverfis þig, þurfa á því að halda, að þú sýnir hugrekki, hafir innri styrk, verjir góðan texta. Góðir ritstjórar finna tíma og rúm fyrir góðan texta. Stækkun fyrirtækja í fjölmiðlum hefur samt breytt mörgum ritstjórum í framkvæmdastjóra.

Talaðu við starfsfólkið:
Blaðamenn vilja, að ritstjórar segi sér, þegar þeir hafa unnið vel. Og líka, þegar miður hefur gengið. Vertu stuttur og sértækur í athugasemdum þínum. Takmarkið er að bæta höfundinn, sem bætir textann.

Starfaðu með starfsfólkinu:
Beztu ritstjórarnir stýra í samstarfi við höfundinn.
Treystu okkur:
Treystu höfundi, sem segir, að saga sé eða sé ekki mikilvæg.

Verndaðu góða vinnu:
Ritstjórar útvega tíma og pláss í fjölmiðlinum fyrir góða vinnu.
Verndaðu góðan stíl:
Ritstjórar knýja fram lagfæringar, nákvæmni, þéttari og betri stíl. Þeir gera ritstjórn óþarfa.

Ritstjóri lærir Peter Drucker,
The Effective Executive: 5 reglur:
1. Hafðu sýn yfir tíma þinn. Kortlegðu dagana og sjáðu í hvað orkan fer. Gerðu síðan nauðsynlegar breytingar.

2. Settu fókus á það, sem þú villt verða þekktur fyrir. Spurðu: Hvað get ég gert þessu fyrirtæki að gagni?
3. Byggðu á styrk starfsmanna og leiðbeindu þeim í átt til styrks.

4. Settu fá atriði í forgang. Þú getur valið um að gera marga hluti illa eða fáa hluti vel.
5. Taktu virkar ákvarðanir. Bíddu eftir hentugu tækifæri og taktu þá vitrar ákvarðanir.

Lærðu Stephen Covey,
Seven Habits of Highly Successful People:
1. Vertu á undan áætlun. Farðu fram fyrir ástandið, ekki bregðast við þegar gerðum hlutum.

2. Hafðu markmið, persónulega forustu.
3. Hafðu fyrstu atriðin fremst. Eyddu ekki deginum í að slökkva elda.
4. Lærðu að vinna með fólki.
5. Jafnaðu þig. Það er til líf fyrir utan vinnu.

Flestum ritstjórum og öðrum yfirmönnum á ritstjórn er þrýst undirbúningslaust í starfið. Þeir verða að læra í starfinu. Það er ekki nóg að hafa verið góður fréttamaður eða höfundur. Hér eftir þarf þér að takast með því að fá aðra til að skila góðri vinnu.

Sumir yfirmenn átta sig á, að sú vinna hentar þeim ekki. Ef þú ert í vafa, skaltu leita ráða hjá öðrum yfirmönnum. Flestir eru nokkra mánuði að komast yfir byrjunarerfiðleikana.

Af hverju vil ég vera ritstjóri?
* Þar eru meiri peningar.
* Það er betri titill.
* Koma höndum á stýrið.
* Kenna fólki og þjálfa það.
* Hjálpa blaðamönnum.

Public Radio:
* Framsýni. Þú veist, hvert er stefnt og hvernig.
* Tjáskipti. Seldu hinum markmiðin.
* Innsæi. Finndu hæfileika, leystu vandamál, fáðu góðar hugmyndir.
* Ábyrgð. Á velferð allra.

Yfirmaður á ritstjórn er fastur fyrir, en gargar ekki. Hann þarf samþykki þeirra, sem hann stjórnar. Hann sætir óáþreifanlegri atkvæðagreiðslu undirmanna. Hann vill sýna fólki, hvernig það getur unnið betur. Nafn hans er ekki undir texta, en áhrifin eru mikil.

Hæfileikar yfirmannsins:
* Góður fréttamaður.
* Skrifar góðan texta.
* Talar eins og fullorðinn maður.
* Góður skipuleggjari.
* Hefur gott fréttamat.
* Hefur góðar hugmyndir.
* Hefur næga orku og kímni.

Allt frá fyrsta degi:
* Skrifaðu allt í dagatalið.
* Skrifaðu allt í minnislistann.
* Farðu snemma í vinnu.
* Lærðu um starfsfólkið.
* Gakktu um og ræddu við fólkið.
Ekki forðast fólk á þeirri forsendu, að þú skiljir það ekki.

Stuðningur á fréttastofu:
Ræktaðu blaðamenn þína, en láttu þá ekki snúa þér. Finndu hina þöglu leiðtoga og fáðu þá í lið með þér. Finndu líka uppreisnarmennina, ögraðu þeim eða láttu þá hjálpa þér.

Þegar þú hefur tekið ábyrgð á verkgæðum annarra, skiptir starf þitt máli á nýjan hátt. Skipulagslaus yfirmennska heftir árangur allra hinna.
Tvær einfaldar reglur:
* Gerðu það, sem þú segist gera.
* Vertu þar, sem þú segist vera.

Sjá nánar:
Foster Davis & Karen F. Dunlap
The Effective Editor, 2000