0845 Snjallsímar

0845

Fréttir 2007-2013
Snjallsímar

Árið 2007 var reynt að endurskapa tölvuna í lófaformi. iPhone kom fram og seldist grimmt, er jafnframt iPod. Tölvurisar, símtækjarisar og hugbúnaðarrisar börðust um völdin, Apple, Microsoft, Nokia, SonyEricson, Google, Palm.

Verið er að sameina í eitt tæki síma, tölvu, vafra, póst, skilaboð, myndavél, leit, tónlist, myndskeið, staðsetningu. iPod og iPhone frá Apple eru skref á þessari leið. Opni, gjaldfrjálsi hugbúnaðurinn Android frá Google er annað skref.

Notendur farsíma eru fleiri en notendur tölva. Búast má við mikilli þenslu auglýsinga í farsímum allra næstu árin. Notendur fá í staðinn ókeypis aðgang að sjónvarpsþáttum, leikjum og tónlist. Með netsíma má búast við ókeypis símtölum.

Auglýsingar í farsíma gætu tengst fyrri notkun símans eða núverandi staðsetningu símans. Þegar þú gengur framhjá kaffihúsi, færðu sérstakt afsláttartilboð. Þetta kallar á betri staðsetningartækni, sem er raunar alltaf að batna.

Apple iPhone byltingin felst mest í að sama flatarmálið er notað fyrir skjáinn og lyklaborðið. Þannig er hægt að hafa hvort tveggja miklu stærra en hjá öðrum framleiðendum.
Þótt iPod og iPhone séu tölvur, eru þær seldar sem tæki.

Android felur í sér opið stýrikerfi farsíma, óháð símum og símafélögum, alveg eins og internetið sjálft er opið stýrikerfi, óháð tölvum og hýsingaraðilum. Farsíminn yrði þá í svipaðri stöðu og nettengd fartölvan.

Android og iPhone geta breytt þessu. Sum símafélög hafa samstarf við Apple eða Google-bandalagið. Óvíst, að nýtt netkerfi á síma verði eins og internetið. Sími og tölva eru misjöfn. Síminn þarf raddstýringu í stað lyklaborðs. Og annað viðmót á vef.

Símafyrirtæki reyna grimmt að selja fólki 3G og aðra nýja þjónustu, t.d. myndsendingar, en viðtökur hafa verið dræmar. Sumir telja þjónustuna vera tilraun til hafa af sér fé. Aðrir skilja ekki flækjur tækninnar. 3G er flókið í umgengni miðað við væntingar.

Farsímar með staðsetningu, GPS, hafa rutt sér til rúms í Japan. Búnaðurinn er þungur og plássfrekur og hentar frekar í bíla en í vasa. Kortin eru því ekki geymd í símanum, heldur koma af netinu. Aðstæður fyrir þessa nýjung eru enn ekki góðar í Evrópu.

Samkeppni við GPS er í vændum. Evrópusambandið undirbýr Galileo, Rússland er með Glonass og Kína undirbýr Baidu. Þessir aðilar vilja ekki, að Bandaríkin hafi einokun á slíku. Hvert kerfi þarf a.m.k. 24 gervihnetti. Hvert kerfi kostar lítið á hvert handtæki.

Símaskilaboð byrjuðu 1993 og hafa algerlega slegið í gegn eftir aldamótin. Þetta hefur reynst öruggur og skjótur samskiptamáti sem hefur sparað mikinn tíma, sem annars hefði farið í símtöl eða í tölvupóst.

Twitter er hugbúnaður, sem sendir fólki skilaboð frá skilgreindum vinum og jafnvel óviðkomandi aðilum. Flestir nota Twitter í vinahópi, en vinsælir twittarar hafa yfir þúsund vini og fylgismenn. John Edwards frambjóðandi hefur yfir 4000.

Twitter er skilaboðakerfi, sem sameinar félagslyndi MySpace, örblogg að hætti Jaiku og að fólk er alltaf viðlátið. Skilaboð eins renna til margra áskrifenda. Frægðarfólk er áberandi, með hjörð fylgismanna á eftir sér.

Lesendur með myndsíma eru að leysa papparassa af hólmi. Þeir eru alls staðar, taka myndir af frægðarfólki og senda beint á blöð eða tímarit. Vandamál hafa skapast af myndum úr búningsklefum og öðrum viðkvæmum stöðum. Lítil áhrif Karólínudóms.

Almenningur tók þátt í fréttum frá Myanmar. Fólk tók símamyndir af atburðum og sagði fréttir í síma beint frá atburðum. Menn sendu inn á YouTube og þaðan fór það um heiminn. Stjórnin gat ekki haldið atburðunum leyndum. Sumir notuðu gervihnattasíma.

Stjórnvöld í Burma reyndu að skrúfa fyrir blaðamennsku borgaranna með því að hægja á internetinu, skrúfa fyrir farsíma og loka netkaffihúsum. En þá komust menn framhjá þessu með því að nota gervihnattasíma.

Síðan á Filippseyjum 2001 hefur notkun farsíma aukist í andófi “mobile activism”. Sett hafa verið upp vefsöfn símamynda af ofbeldi yfirvalda. FrontlineSMS er hugbúnaður, sem heldur utan um eftirlit með kosningum. Var notað í Burma til að koma fréttum út.

Víða er erfitt að loka farsímakerfum til að spilla fyrir andófi. Fólk hefur líka gervihnattasíma. Í Hvíta-Rússlandi lokuðu yfirvöld farsímakerfum á takmörkuðu svæði mótmæla. Yfirleitt hefur almenningur færi á að fara kringum eftirlit stjórnvalda.

Viltu, að vinir þínir eða konan þín viti, hvar þú ert. Ungu fólki finnst það eðlilegt, það leitar að vini, sem er staddur nálægt og nennir að koma í kaffi. Buddy Beacon heitir eitt forritið. Hægt er að stilla GPS af og á í simum, sem það hafa.

Það nýjasta í vefsíma er að bjóða auglýsingar, sem byggja á staðsetningu símans hverju sinni. Það gæti verið tilboð frá veitingahúsi í nágrenni við símahafann. Tilboðin eru grundvöllur þess, að hann sætti sig við auglýsinguna. Annars væri þetta ruslpóstur.

Tískuhúsin eru farin að hanna farsíma, Dior, Swarowski, Tag Heuer, Dolce & Gabbana, Prada, Armani og Porsche eru þar á meðal. iPhone frá Apple er fyrirmyndin. Snjallsímar eru orðin tískuvara eins og úrin voru í gamla daga.

Fólk er ósátt við léleg gæði mynda í símum og enn frekar við léleg gæði sjónvarpsefnis. Í raun notar fólk með 3G síma þá á sama hátt og fólk með GPRS síma. Símar eru enn lítið notaðir í netsambandi og tölvupósti. Myndsímafundir eru ekki notaðir.

Erfitt er að sjá, að símafélög geti lengi selt þjónustu, sem internetið býður ókeypis. Skype er dæmi um ókeypis síma, en aðrir framleiðendur hugbúnaðar eru einnig á svipaðri leið. Google hefur gefið út opinn hugbúnað fyrir síma, Android.

Mest seldu snjallsímarnir árið 2012 komu frá Apple, Samsung Huawei og Nokia. Helztu stýrikerfi snjallsíma árið 2012 voru IOS frá Apple og Android frá Google. Flest önnur stýrikerfi hafa orðið að víkja fyrir risunum tveimur.