0348 Símiðlun og almiðlun

0348

Nýmiðlun
Símiðlun og almiðlun
Howard Rheingold: Smart Mobs, The Next Social Revolution,2002

Tonga, Mongólía, Rez og Wales:
Hughes fattaði, að flestir íbúar í Wales bjuggu í innan Airport fjarlægðar frá næstu krá. Hann lét setja upp netpunkt á öllum krám. Þar með náðist net um allt landið.

Í augsýn er, að hraði ókeypis tenginga þúsundfaldist. Símaeftirlitsstofnanir, öryggisstofnanir og hermálaráðuneytið óttast, að þráðlaus veraldarvefur valdi truflun. Samt þarf ekki að skammta aðgang, aðeins að bæta tæknina.

Airport og Bluetooth vinna saman. Bluetooth tengir þráðlaust saman allra nánasta umhverfi, t.d. heimili. Airport tengir þessi Bluetooth kerfi heimilanna við ytra svæðiskerfi götunnar eða hverfisins.

Opin bandvídd gegn óvinum:
Með þéttu neti Airport er búinn til ókeypis afréttur. Þar með má aflétta skömmtun símaleyfa. Ný tækni hrindir oft valdi eldri tækni og gerir hana úrelta. Símafyrirtækin reyna að hindra þetta eða breyta sér eftir aðstæðum.

* 1999, uppþotin í Seattle.
* 2000, benzínstopp í London.
* 2000, uppþotin í Toronto.
* 2001, byltingin í Manila.
* 2002, aðgerðir hjólreiðamanna í San Francisco.
Þægilegt og fljótlegt er að áframsenda skilaboð í SMS.

SMS er í eðli sínu uppreisnargjarnt. Það örvar andmæli og hreyfingu, setur af stað skrílinn og breytir ferð hans, sundrar honum og sameinar hann aftur. Alveg eins og skæruliðar. Slík net eru nýtt samfélagsform:Ættbálkar, valdapíramídi, markaður, net.

* Miðlun persónusambanda.
* Eru vinir í nágrenninu?
* Frægðarfólk vaktað
* Myndir fara beint á vefinn.
* Félagslegur miðlunarbúnaður býr til bráðræðishópa.
* Blaðamennska jafningja, án eða með milligöngu fjölmiðla.

Fólk bloggar beint af fundum og ráðstefnum. Það sífærir upp blogg sín með Airport-tengingum. Það tekur myndir, sem birtast í rauntíma. Þetta er bylting, ný tegund heimsmenningar.

Hreyfanlegt bráðræðisnet:
SMS er:
* Hreyfanlegt kerfi.
* Bráðræðiskerfi.
* Félagslegt kerfi.
Það er hið fullkomna p2p.
Þriggja metra upplýsingablaðra verður kringum hvern einstakling.

Flugnagersgreind og félagshugur: Fjöldamótmæli: Fólk þarf misháa þröskulda til að fara frá þáttökuleysi yfir í aðild. Einhverjir fara af stað, aðrir fylgja þeim og loks koma hinir, af því að þeir þora að fylgja fjöldanum. Þetta er skríllinn, til góðs eða ills.

Flugnagerið:
* Engin miðlæg stjórn.
* Sjálfstæði aðildarhópa.
* Mikið samband milli aðildarhópa.
* Netið virkar þannig að einstaklingar fylgja eftir einstaklingum. Það er mælanlegt.

Sívirk ódáinsfæða:
Þegar allir eru í æði að reyna að ná sambandi, getum við um leið athugað kosti þess að vera stundum utan sambands. Svo að við verðum ekki þrælar tölvupósts, stafrænnar vinnu og þráðtengdra eða þráðlausra tækja.

Kannski ættirðu að hafna því:
10% unglinga hafnar farsímum. Fólk hugsar ekki bara um tækni. Það spyr líka, hvernig fólk það verði við notkun tækninnar.
* Ógn við frelsi.
* Ógn við lífsgæði.
* Ógn við mannlega virðingu.

Árið 2002 birti BBC að menn væru í mynd 300 sinnum á dag. Hver smellur í samtengda kerfinu rekur persónulega sögu þína. Allir eru alltaf staðsettir. Eftirleit kaupmanna að neytendum er ágengara en eftirlit Stóra bróður.

Alls staðar er fólk með myndsíma að skrá atburði, t.d. glæpi. Fólk fer að hegða sér betur með tilliti til þess. Þetta kemur til viðbótar eftirliti skriffinna, herja, menntastofnana, lögreglu. Þannig mun sjálfvirka eftirlitið breyta framtíðinni.

Vinnan umlykur allt. Menn eru alltaf í kallfæri, farsíminn er alltaf í sambandi. Sífellt og alls staðar er verið að trufla fólk. Með auknum frístundum aukast annir fólks.
Menn fara að rugla saman fólki og tölvum, umgangast tölvur eins og fólk. Viðstaddir og fjarstaddir.

Samlíf eða hryllingur:
Tæknin er blint afl, sem leystir fyrri siðmenningar af hólmi. Allt er mælt og gert stafrænt. Vélmenni eru ekki lengur framtíðarmúsík.
Hvað verðum við að vita?:

* Skipulagning farsímasambands við veraldarvefinn.
* Náttúrulegt og tilbúið umhverfi starfa saman.
* Áhrif símiðlunar og almiðlunar á huga, samskipti og samfélag.
* Áhrif símiðlunar og almiðlunar á framtíð borga.

Andstæðingar klára skrílsins eru símafyrirtæki, kvikmyndaver, kapalkerfi. Slíkir aðilar vilja hindra fólk í að nota p2p. Fjölmiðlarnir eru grein af þessum meiði.

Staður, staður, staður: Upplýsingamiðlarar og stafrænar borgir:
Að klæðast tölvum: Pólitískur orrustuvöllur altækninnar:

Þráðlaust teppi:
Bráðræðisnet grasrótarnotenda ódýrra og hraðvirkra samskipta á veraldarvefnum ógnar tækni, regluverki og atvinnuvegum.

Sjá nánar:
Howard Rheingold: Smart Mobs, The Next Social Revolution, 2023