0234 Útlit ljósmynda I

0234

Blaðamennska
Útlit ljósmynda I
Brian Horton, AP Guide to Photojournalism, 2. útgáfa 2001

Þrjú öfl ráða útliti ljósmynda þinna:
1) Teikning.
2) Stíll.
3) Skurður.

Teikning: Hún er safn eininga í ljósmyndinni og barátta þessara eininga um athygli lesandans. Þegar augu hans skanna myndirnar á síðunni eða opnunni, fær teikningin hann til að fletta áfram eða stansa og virða fyrir sér myndina.

Stíll : Ef teikningin er í samræmi, verður úr því stíll, sem segir, að þetta sé þín mynd.
Skurður: Hann innifelur eða útilokar atriði við töku myndarinnar eða á skjánum í ljósmyndadeild.

Meðvitund fólks um myndgæði hefur aukist. Bob Lynn: “Unga fólkið er alið upp á alls konar myndrænu efni frá því í vöggu. Ég hef meiri trú á myndskilningi fólks en margir frétta- og ritstjórar hafa.”

Ljósmynda-blaðamennska er ekki list fyrir listina. Menn geta verið ljósmyndarar án þess að vera blaðamenn. Ef mynd flytur engin skilaboð, getur hún verið fín uppi á vegg, en hún þarf að segja sögu til að vera blaðamennska.

Of margir ljósmyndarar reyna að vera “artí”. Þeir eru venjulega að reyna að vekja athygli annarra ljósmyndara, en eru ekki að hugsa um lesendur, eru ekki að vinna vinnuna sína. Cliff Schiappa: “Við verðum fyrst og fremst að ná sambandi.”

Stíll getur gengið of langt í ljósmynda-blaðamennsku. Stíll snýst oft um ljósmyndarann sjálfan, ekki um blaðamennsku og ekki um viðfangsefnið. Ljósmynda-blaðamennska er ekki list, hún er blaðamennska, hvorki minni né meiri en list.

Ljósmynda-listamaðurinn hefur skoðun eða á að hafa skoðun. Ljósmynda-blaðamaðurinn er fréttamaður og segir frá því, sem gerðist. List þarf ekki að lýsa neinum sannleika, en blaðamennska þarf að þjóna honum.

Ljósmynda-blaðamaðurinn klippir ekki af limi af því að það sé í tísku í listinni. Hann setur ekki hlut úr fókus fremst í myndina, af því að það sé í tísku. Það getur verið fínt umræðuefni ljósmyndara, en höfðar ekki til lesenda.

Listrænn ljósmyndari leyfir sér hluti, sem ljósmynda-blaðamaðurinn getur ekki. Sá síðarnefndi getur ekki fiktað við myndina. Hann getur afmarkað myndflötinn, mest þegar myndin er tekin, en minna, þegar gengið er frá myndinni til birtingar.

Myndritstjórinn þarf að hafa þetta í huga, þegar hann breytir mynd ljósmyndara. Best er, að myndskurður á ritstjórn sé samráðavinna ljósmyndara og yfirmanns hans. Þeir tali út um málið, en yfirmaðurinn segi ekki bara: Ég vil “3 og 17”.

Stefna Associated Press: “AP breytir ekki ljósmyndum. Okkar myndir verða alltaf að segja satt.” “Innihaldi ljósmyndar er ALDREI breytt eða það skekkt á nokkurn hátt.” Þetta er mikilvæg regla á tíma stafrænnar ljósmyndunar og Photoshop.

Þoka hefur verið í tísku í ljósmyndun og haft áhrif á myndir í tímaritum. Ýmsir ljósmyndarar telja, að lesandanum sé sama, en það er ekki rétt. Ef hann hættir að treysta því, að ljósmynd segi satt, missir hann traust á fjölmiðlinum.

Almennt halda dagblöð uppi vörnum gegn fikti við ljósmyndir í Photoshop, en varnir hafa bilað á tímaritum. Nánast allar forsíður Time eru tilbúnar og National Geographic færir píramídana hvern nær öðrum til að fá betri forsíðu.

Kenny Irby: “Ég hef mestar áhyggjur af þeirri skoðun, að áhorfendur ljósmynda hafi farið að samþykkja fölsun ljósmynda sem staðreynd og trúi ekki lengur neinu, sem þeir sjá.” Falsaðir myndir í tímaritum minnka líka traust á dagblöðum.

Afturförin í þessu efni er ekki keyrð fram af ljósmyndurum eða blaðamönnum, heldur af hönnuðum, sem mega ekki komast í Photoshop. Þeir hafa enga þjálfun sem blaðamenn og skilja ekki reglur blaðamennsku, hafa engan skilning á henni.

Í stað þess að lifa við sannleikann eins og hann birtist á ljósmynd, freistast þeir til að bæta sannleikann, taka út ljósastaur, sem er fyrir. Þetta er hugarfar frá Madison Avenue, óháð heilindum og nákvæmni, sem einkenna blaðamennsku.

Harold G. Buell: “Það eru mikil mistök, ef dagblöð halda, að það sé nóg að setja á sex punkta letri, að myndin sé “hönnuð” og þar með séu þau laus allra mála. Þetta er klassískur flótti blaðamennskunnar. Enginn les þessa sex punkta línu.”

Í raun hefur bilun orðið á innsíðum blaða, þótt hún hafi ekki enn orðið á fréttasíðunum. Baráttan milli gervimennsku og sannleika er því komin inn á vinnustöðvar dagblaða. Samþykkja lesendur þetta og hver er afleiðingin?

Sjá nánar:
Brian Horton, AP Guide to Photojournalism, 2. útgáfa 2001

Stefna Associated Press: “AP breytir ekki ljósmyndum. Okkar myndir verða alltaf að segja satt.” “Innihaldi ljósmyndar er ALDREI breytt eða það skekkt á nokkurn hátt.” Þetta er mikilvæg regla á tíma stafrænnar ljósmyndunar og Photoshop.