0203 Fréttaskrif I

0203

Blaðamennska
Fréttin skrifuð I

Texti er hafður einfaldur til að verða spennandi. Fréttatexti á að vera stuttur, skýr og spennandi. Stuttur texti er skýr. Skýr texti er spennandi. Fréttastíll er bestur stuttaralegur. Þú þarft að vera góður í íslensku og skilja málfræði og setningafræði.

Ef þú skilur ekki efni fréttarinnar, sem þú ert að skrifa, er öll fyrirhöfn fyrir gýg. Þú getur ekki fengið lesandann til að skilja frétt, ef þú hefur tekið viðtal við sérfræðing, sem þú skilur ekki. Það getur ekki gefist vel.

Síðan farið var að skrifa beint inn á síður í ritstjórnarforritum eins og SaxoPress, hefur aftur opnast möguleiki á að klykkja út með fullnægingu í enda fréttarinnar. Það var ekki hægt, þegar menn urðu að geta klippt aftan af.

Skrif: Sviðsskrekkur er algengur hjá byrjanda í blaðamennsku. Þú starir á auðan skjáinn meðan reyndir blaðamenn í kringum þig hamast á lyklaborðinu með ævintýralegum hraða. Þá spyrja menn sig, er ég í rangri atvinnugrein?

Hraðinn kemur með reynslunni. Blaðamennska er iðngrein, stundum list.
Góð skrif eru blátt áfram, textinn rennur fram áreynslulaust. Blaðamenn þurfa að átta sig á, að þeir eru að segja sanna sögu, sem á að grípa fólk.

Gættu þín að fara varlega í að skrifa orðrétt upp eftir segulbandi. Ritað mál er allt öðru vísi en talað mál. Fáir viðmælendur kunna að haga máli sínu eins meitlað og skrifað mál mundi vera. Textinn á hins vegar að virka sem talað mál.

Texti greinar verður til (átta atriði):
1. Hugmynd að grein. Kemur oft frá einum heimildamanna þinna.
2. Söfnun upplýsinga. Hvenær má telja, að henni sé lokið?

3. Skipulagning staðreynda og skipulagning greinar, fókus fundinn. Sumar staðreyndir falla út.
4. Gerð uppkasts. Bera þarf texta undir yfirmenn og meta fókusinn.
5. Snyrting og frágangur sögunnar. Staðreyndum þarf að raða rétt saman.

6. Hvaða spurningum er ósvarað? Endurvinna málið, muna H-in sjö. Hvað vantar?
7. Leita aftur aðstoðar vaktstjóra, fréttastjóra, kæla söguna. Finna endurbættan fókus.
8. Hver á tónninn að vera, alvörugefinn, gamansamur, hneykslaður.

Þrjár gerðir frétta:
1. Öfugur pýramídi. Merkast efst og síðan ómerkara, má klippa.
2. Tilvitnanasaga. Byrjað á tilvitnun, tilvitnanir og frásögn á víxl.
3. Frestað upphaf. Þegar ekki er hætta á niðurskurði. Lesandi bíður ekki lengi.

24 reglur um textastíl:
1. Íslenska er hratt og hreyfanlegt tungumál eins og enska.
2. Ein hugmynd er í málsgrein. Tengdar hugmyndir eru í málslið. Færri en 23 orð eru í málsgrein.
3. Nota sagnorð, ekki nafnorð (kaus, ekki: greiddi atkvæði).

4. Nota frumlag-germynd, ekki andlag-þolmynd (hann gerði,ekki: það var framkvæmt af honum).
5. Nota sagnorð og nafnorð, ekki forsetningar (það er), lýsingarorð og atviksorð.
6. Einfaldar og stuttar málsgreinar: Frumlag, sagnorð, andlag.

7. Nota einföld og stutt orð. (kjör, kosning, ekki: atkvæðagreiðsla).
8. Forðast klisjur, spakmæli, orðtök, tískufyrirbæri (á ári, ekki: á ársgrundvelli) (ekki: versla sér).
9. Nota rétta tíð og mynd (þeir léku vel, ekki: þeir voru að spila vel).

10. Gæta þess, að tíðir, myndir, tölur og föll orða standist á. Lestu yfir.
11. Ekki þjappa of mikið í málsgreinar, einkum í upphafi greinar.
12. Lýsa aðstæðum og bakgrunni. Flytja lesanda á stað atburðarins.

13. Skilgreina hugtök, sem lesandinn skilur ekki (ekki: LÍÚ, BNA, BUGL).
14. Vísa til hliðstæðna, þegar þú útskýrir flókin atriði.
15. Svara öllum spurningum, sem upp kunna að koma.

16. Búa ekki til væntingar, sem þú stendur ekki við. Sýna dæmin.
17. Vera varfærinn í orðum, þegar sagan sjálf er dramatísk.
18. Sýna í stað þess að segja frá (hann lamdi hnefanum í borðið).

19. Hafa mikilvægustu orðin fremst í málsgrein. Lesandinn nennir ekki að bíða.
20. Fara sparlega með beinar tilvitnanir til að forðast að vera langorður
21. Koma strax með nafn viðmælandans, ekki á eftir tilvitnuninni.

22. Strika út óþörf atriði. Góður stíll er knappur, kraftmikill.
23. Ekki ýkja, láttu söguna segja sig sjálfa. Það gera góðar sögur.
24. Lesa söguna upphátt. Það segir þér, þegar textinn fer að ramba.

Mundu, að texti, sem skrifaður er í tölvu, er ekki meitlaður í stein. Þú getur litið á hann sem uppkast, sem þú getur breytt eða fleygt. Ekki gefast upp, þótt fyrstu fimm tilraunirnar misheppnist. Þú dettur fyrir rest niður á góða lausn.

Fréttatexti á að vera stuttur, skýr og spennandi. Stuttur texti er skýr. Skýr texti er spennandi.

Verkefni:
Skrifaðu 100 orða frétt með hliðsjón af hugmyndum úr þessum fyrirlestri.