0429 Frágangur viðtala

0429

Fréttamennska
Frágangur viðtala

Margir blaðamenn laga frásögn viðmælandans, þegar þeir ganga frá því, leiðrétta málvillur og sleppa fáránlegum fullyrðingum, sem ekki varða söguna beint. Þeir klippa líka málsgreinar út, ef það breytir ekki merkingu þess, sem birt er.

Ef hins vegar málvillur og aðrar villur eru hluti af persónulýsingunni, mega þær halda sér. Raunar má líta svo á, að það sé frekja að ætlast til, að allir tali skólabókar-íslensku, þegar þeir vilja ekki gera það.

Lögfræðileg atriði:
1) Ef þú notar segulbandstæki, láttu það sannreyna tilvitnanir.
2) Leyfilegt er að leiðrétta málfræði, setningafræði, stam í tilvitnunum og setja inn orð til skýringar.

3) Leyfilegt er að strika út óviðkomandi atriði og hliðarspor.
4) Leyfilegt er að skipta út orðum án þess að breyta merkingu.
5) Athugaðu heildarmyndina, ef þú breytir einhverju. Hefur það skekkt raunveruleikann.

Arnold Gingrich sagði: “Það grimmasta, sem hægt er að gera nokkrum manni, er að vitna rétt í hann.” Richard Daley borgarstjóri sagði: “Þeir úthúðuð mér, þeir krossfestu mig, já og þeir meira að segja gagnrýndu mig.”

New York Times reglur: “Tilvitnanir eru heilagar. Ef menn freistast til að breyta þeim, tekurðu gæsalappirnar burt og notar óbeina ræðu.” Washington Post: “Tilvitnanir eiga að vera nákvæmar. Ekki má breyta orðaröð til að ná betri texta.”

Anthony Kennedy hæstaréttardómari: “Blaðamenn verða að breyta því, sem fólk segir, að minnsta kosti til að laga málfræði og setningarfræði. Að álíta slíkt vera fölsun eða illvilja er ekki í samræmi við dómvenju og stjórnarskrána.”

Tilvitnanir í Bush: “Þeir vanundirmátu mig.” “Þeir vilja, að ríkið stýri tryggingakerfinu eins og það sé opinber þjónusta.” “Fjölskyldan er þar, sem þjóðin fær von, þar sem vængir fá drauma.” “Forsendur okkar er trúin.”

Sýnishorn af skoðunum með og móti viðtölum á internetinu.
Já: Það er þægilegt og fljótlegt. Öfugt við símann er viðtalið til í prentuðu formi, sem skiptir máli við að ná nákvæmlega tungutaki viðmælandans. Svörin eru betur hugsuð.

Nei: Það er ekki viðtal, það er bréfasamband. Þú getur ekki sagt: “Hann sagði”. Er það hann, sem skrifar, eða ritarinn. Það er ekki lifandi viðtal. Það er ekki auðvelt að skjóta inn spurningum. Það er engin tjáning líkamans. Hræðilegt.

“Mér fannst tölvuviðtöl í fyrstu vera þægileg, en síðan fannst mér þau búa til of mikil vandamál. Auk þess hafði ég gott af að fara út og hitta viðmælandann.”

Heimildir vilja ekki alltaf koma fram, af ýmsum ástæðum. Það getur verið skrifstofumaður undir járnhæl yfirmanns. Það getur verið starfsmaður, sem kemur upp um ólöglegt eða ósiðlegt athæfi yfirmanns.

David Shribman hjá Boston Globe: “Nafngreining heimildar er núna upphafsatriði samninga um samtal við blaðamann. Það fyrsta, sem menn segja, er hvernig þeir vilja að sér sé lýst (t.d. embættismaður). Það er orðin samningsstaða.”

Nafnlaus heimild er ekki ábyrg fyrir upplýsingunum. Þess vegna getur hún farið með rangt mál, mistúlkað eða logið. Frægasta dæmið um nafnlausa heimild er “Deep Throat”, sem hjálpaði Woodward hjá Washington Post í Watergate-málinu.

Harry M. Rosenfeld hjá Times-Union segir: “Ekkert blað, sem máli skiptir, getur verið án nafnlausra heimilda. Án slíkra heimilda mundi vanta það besta í blaðamennskuna.”

Carl Bernstein hjá Washington Post segir. “Við nafngreindum aldrei neinn heimildamann. Við hefðum aldrei getað fylgt sögunni eftir án nafnlausra heimildamanna.”

Joel Kramer hjá Star Tribune segir: “Nafnlausar heimildir eru eins og flugeldar. Rétt notaðar geta þær framkallað mikla skrautsýningu. En þær geta líka sprungið í vasanum.” USA Today notar ekki nafnlausar heimildir. Það stendur í stefnuskrá blaðsins.

Michael Gartner hjá Ames Daily Tribune segir: “Nafnlausar heimildir eru að ná tökum á blaðamennskunni. Það er vond þróun, sem rýrir traust dagblaða og magnar ábyrgðarleysi dagblaða.”

Leiðbeiningar:
1) Forðastu nafnlausar heimildir, ef hægt er.
2) Skýrðu rækilega fyrir viðmælanda, hverjir kostirnir eru.

3) Nafnlausar heimildir mega ekki fá að gagnrýna persónu eða heilindi nafngreinds aðila.
4) Skýrðu viðmælandanum frá því, að þó að hann verði nafnlaus, muni ritstjórinn fá að vita nafn hans.

Þægileg framkoma, hlutlaus fyrsta spurning, vilji til að hlusta; þetta róar viðmælandann. Jules Loh hjá AP segir: “Ég spyr: Hvenær ertu fæddur. Hann svarar: 1945. Ég spyr: Hvaða dag. Hann svarar: 1. október. Ég tek upp minnisbókina.”

Eftir nokkrar slíkar spurningar er viðmælandinn orðinn rólegur. Honum finnst, að þú hafir áhuga á að fara rétt með staðreyndir. “Ég heyri of oft talað um, að blaðamenn fari ekki rétt með það, sem fólk segir.”