Textagerð

Textastíll
Textagerð

Notaðu stuttan, skýran og spennandi texta.

Sviðsskrekkur er algengur hjá byrjanda í blaðamennsku. Þú starir á auðan skjáinn meðan reyndir blaðamenn kringum þig hamast á lyklaborðinu með ævintýralegum hraða. Þá spyrja menn sig, er ég í rangri atvinnugrein?

Hraðinn kemur með reynslunni. Blaðamennska er handverk, en verður stundum list.
Góð skrif eru blátt áfram, textinn rennur fram áreynslulaust. Blaðamenn þurfa að átta sig á, að þeir eru að segja sanna sögu, sem á að grípa fólk.

Mundu, að texti, sem skrifaður er í tölvu, er ekki meitlaður í stein. Þú getur litið á hann sem uppkast, sem þú getur breytt eða fleygt. Ekki gefast upp, þótt fyrstu fimm tilraunirnar misheppnist. Þú dettur fyrir rest niður á góða lausn.

Gættu þín að fara varlega í skrifa orðrétt upp eftir segulböndum. Fágað mál er öðru vísi en talað mál. Fáir viðmælendur kunna að haga máli sínu eins meitlað og skrifað mál mundi vera. Textinn á hins vegar að virka sem talað mál.

Kældu þig niður, þegar þú ert búinn. Ef þú ert ekki í tímahraki, er gott að dreifa huganum, skoða myndasögur, tala við efnisstjórann. Síðan ferðu aftur að sögunni, skrifar hana upp á nýtt, þegar þú ert búinn að fá fjarlægð frá efninu.

Texti þarf að vera einfaldur til að verða spennandi. Texti á að vera stuttur, skýr og spennandi. Stuttur texti er skýr. Skýr texti er spennandi. Fréttastíll er bestur stuttaralegur. Þú þarft að vera góður í íslensku, skilja málfræði, setningarfræði.

Stuttur er áhrifsorðið í þríliðunni: Stuttur > skýr > spennandi. Það þýðir, að hefðbundinn jórturstíll í fréttum og öðrum upplýsingum þarf að víkja. Víkja fyrir stuttum stíl, sem hentar skönnun af tölvuskjá eða farsímaskjá. Sem fólk hefur tíma til að notfæra sér.

Kunna að skipuleggja smáatriði inn í textann (staðreyndir á víð og dreif í viðtölum). Stundum gagnast ekki að byrja á staðreynd A og enda á staðreynd Ö. Stundum hæfir að byrja á L,M,N, O og P og setja þær staðreyndir fremst.

Oft eru mikilvægustu atriði fréttarinnar á víð og dreif í viðtölum við ýmsa aðila og í öðrum heimildum. Þú verður að búa til fókus og hafa yfirsýn, hvernig þú dregur mikilvægustu atriðin saman í texta, og vita, hverju þú átt að sleppa.

Ef þú skilur ekki efni fréttarinnar, sem þú ert að skrifa, er öll fyrirhöfn fyrir gýg. Þú getur ekki fengið lesandann til að skilja frétt, ef þú hefur tekið viðtal við sérfræðing, sem þú skilur ekki. Það getur ekki virkað vel. Ef þú skilur ekki, skilur lesandinn ekki.

Síðan farið var að skrifa beint inn á síður í ritstjórnarforritum eins og SaxoPress, hefur aftur opnast möguleiki á að klykkja út með klímax í enda fréttarinnar. Það var ekki hægt, þegar menn urðu að geta klippt aftan af fréttinni (öfugur píramídi).

Texti greinar verður til:
1. Hugmynd að grein. Kemur oft frá einum heimildamanna þinna.
2. Söfnun upplýsinga. Hvenær má telja, að henni sé lokið?
3. Skipulagning staðreynda og skipulagning greinar. Sumar staðreyndir falla út.
4. Gerð uppkasts. Bera þarf texta undir yfirmenn og finna fókusinn.
5. Snyrting og frágangur sögunnar. Staðreyndum þarf að raða rétt saman.
6. Hvaða spurningum er ósvarað, endurvinna málið, muna Hvin sjö. Hvað vantar?
7. Leita aftur aðstoðar vaktstjóra, fréttastjóra, kæla söguna. Finna fókus.
8. Hver á tónninn að vera, alvörugefinn, gamansamur, hneykslaður.

Þrjár meginreglur um stíl
1. Öfugur pýramídi. Merkast efst og síðan ómerkara, má klippa.
2. Tilvitnanasaga. Byrjað á tilvitnun, tilvitnanir og frásögn á víxl.
3. Frestað upphaf. Þegar ekki er hætta á niðurskurði. Lesandi bíður samt ekki lengi.

Tólf reglur um upphaf texta

1. Samantektin: Hver gerði hvað, hvar, hvenær, hvernig, hvers vegna, hvað svo?
2. Einhæfing: Jón verður að greiða 2.500 kr meira á ári í fasteignagjöld.
3. Dramatík: Jón þagði lengi, þegar hann kom í ræðustólinn.
4. Tilvitnun: “Mér er það minnisstætt, hann sat hjá,” sagði Sverrir Hermannsson.
5. Litur: Jón Jónsson hristi höfuðið, þegar Páll Pálsson las.
6. Frestun: Forstjóri deCode var á áhorfendapalli, þegar kosið var á þingi um ríkisábyrgð þess.
7. Viðbrögð: Útifundur til að mótmæla notkun eiturefna í æðarvarpi hófst … .
8. Fréttaljós: Jón vann atkvæðagreiðsluna, en gæti tapað málinu.
9. Stöðumat: Staða Vinstri grænna er veikari en hún var eftir kosninguna.
10. Spurning: Hvað hefði gerst, ef Jón hefði stutt tillögu Páls?
11. Brandari: Kári neitaði sjálfur að nota augnsjá í WorldClass, þótt hann hefði mælt með henni.
12. Undrun.: Þverstæða, statistík, dæmisaga, frásögn, afturhvarf í tíma.

24 reglur um stíl

1. Íslenska er hratt og hreyfanlegt tungumál, að því leyti lík ensku.
2. Ein hugmynd í hverri málsgrein. Mest 17 orð í málsgrein. Hemingway.
3. Nota sagnorð, ekki nafnorð (hann kaus, ekki: hann greiddi atkvæði).
4. Nota frumlag, ekki andlag (hann gerði, ekki: það var framkvæmt af honum).
5. Nota sagnorð og nafnorð, ekki lýsingar og atviksorð.
6. Nota einfaldar og stuttar málsgreinar: Frumlag, umsögn, andlag.
7. Nota einföld og stutt orð. (kjör, kosning, ekki: atkvæðagreiðsla).
8. Forðast klisjur, tískufyrirbæri (á ári, ekki: á ársgrundvelli) (kaupa, ekki: versla sér).
9. Nota rétta tíð og mynd (þeir léku vel, ekki: þeir voru að spila vel).
10. Gæta þess, að tíðir, myndir, tölur og föll orða standist á. Lestu yfir.
11. Ekki þjappa of miklu í málsgreinar, einkum í upphafi greinar.
12. Lýsa aðstæðum og bakgrunni, flytja lesandann á vettvang.
13. Skilgreina hugtök, sem lesandinn skilur ekki (ekki: LÍÚ, BNA).
14. Vísa til hliðstæðna, þegar þú útskýrir flókin atriði.
15. Svara öllum spurningum, sem upp kunna að koma.
16. Búa ekki til væntingar, sem þú stendur ekki við. Sýndu dæmin.
17. Vera varfærinn í orðum, þegar sagan sjálf er dramatísk.
18. Sýna í stað þess að segja frá: “Hann lamdi hnefanum í borðið.”
19. Hafa mikilvægustu orðin fremst í málsgrein. Lesandinn nennir ekki að bíða.
20. Fara sparlega með beinar tilvitnanir til að forðast að vera langorður
21. Koma strax með nafn viðmælandans, ekki á eftir tilvitnuninni.
22. Strikaðu út óþörf atriði. Góður stíll er knappur, kraftmikill.
23. Ekki ýkja, láttu söguna segja sig sjálfa. Það gera góðar sögur.
24. Lestu söguna upphátt. Það segir þér, þegar textinn fer að ramba.

Átta tegundir frétta

1. Öfugur píramídi:
A. Nýjar vendingar í málinu. B. Tveirþrír málsliðir með fleiri upplýsingum um þessar nýju vendingar. C. Skýrt frá, hvernig þetta tengist sögu málsins. D. Lokið að segja frá vendingunum. E. Auka og viðbótarupplýsingar.

2. Tímasaga:
Fyrst er inngangur. Síðan er sagan sögð nokkurn veginn í þeirri röð, sem atburðir hennar gerðust. Fréttir af atburðarás henta oft þessari aðferð við að segja frá. Dæmigerð er íþróttafrétt af gangi kappleiks.

3. Raðsaga:
Fyrst er inngangur. Síðan eru raktir nokkrir sjálfstæðir og jafngildir þættir málsins í röð, A. B. C. D. o.s.frv, venjulega í mikilvægisröð. Þeir eru síðan dregnir saman í lokin. Sagt er frá gengi liða í einni umferð.

4. Frestuð saga:
Inngangurinn lýsir kringumstæðum eða dæmi, sem varpar ljósi á söguna. Síðan kemur sagan sjálf. Ekki fresta of lengi að koma með meginatriði sögunnar, því að annars getur lesandinn flett framhjá málinu.

5. Spennusaga:
Réttur píramídi. Endir kemur á óvart. Þú byrjar á að segja frá því sem gerðist, en segir ekki niðurstöðuna fyrr en í síðasta málslið. Þetta er fremur sjaldgæf aðferð. Hafðu samt auga á skrítnum sögum og gamansömum.

6. Grein:
Þú segir ekki bara fréttir, heldur gefur líka mynd. Þú reynir að draga upp mynd í huga lesandans. Tímasetning skiptir minna máli en í frétt. Mannleg áhugamál vega þyngra. Passaðu að láta söguna hanga saman á fókus.

7. Greining:
Þú lýsir verkefni eða vandamáli. Þú segir frá þeim, sem koma að málinu og hvaða afstöðu þeir tóku. Þú spáir í, hvað muni gerast næst. Þarna er oft um að ræða fréttaskýringu, þar sem höfundurinn tekur þátt í umræðunni.

8. Kjallaragrein eða menningarrýni:
Óteljandi form eru á greinum, sem fela í sér skoðanir. Allt gildir, svo framarlega sem það vekur áhuga lesandans og er vel skrifað. Þetta efni er oft sett fram í fyrstu persónu. “Ég tel”.

Sjötta regla Jónasar:
Notaðu stuttan, skýran og spennandi texta.

Fair Use © Jónas Kristjánsson, 2008

Hlé