Stjórnvöld

Rannsóknir
Stjórnvöld

Þegar rannsókn er komin í gang, koma fljótlega í ljós einstaklingar. Mannlýsingar þeirra eru mikilvægur þáttur í rannsóknablaðamennsku. Hverjir eru þeir, hver er bakgrunnur þeirra, hverjir eru í sambandi við þá, hver er tilgangur þeirra?

Veldu mann og kannaðu, hvað þú getur fundið um hann:
1) Kjörskrá veitir upplýsingar um heimilisföng og mannanöfn.
2) Símaskrá á netinu veitir upplýsingar um heimili og nöfn.
3) Þjóðskrá veitir upplýsingar um kennitölur fólks.
4) Bifreiðaskrá veitir upplýsingar um bíla og mannanöfn.
5) Manntalsskrá veitir upplýsingar um fæðingardag og foreldra.
6) Fasteignaskrá veitir upplýsingar um eigendur fasteigna.
7) Veðbók veitir upplýsingar um fyrri eigendur og um veðbönd á eign.
8) Eftirlitsskrár veita upplýsingar um ástand fasteigna.
9) Árbækur skóla veita upplýsingar um bekki og nemendur.

Opinberar persónur eru yfirleitt slípaðar af umgengni við blaðamenn. Þær koma vel fyrir, eru fljótar til svara, eru sannfærandi. Rannsóknablaðamaður verður að forðast að lenda í álögum vegna þessa. Hann þarf að meta upplýsingarnar sjálfur.

Ef opinber persóna segist ekki hafa gögn eða ekki muna þau, segir blaðamaðurinn: Ég skal hringja í þig á föstudaginn til að vita, hvort þú hefur fundið gögnin. Ef ekki næst þá í persónuna, segir blaðamaðurinn enga sönnun hafa komið fram.

Off-the-record er sú staða, að viðmælandi óskar, að ekki sé haft eftir sér það sem þeir ætla að segja, og blaðamaðurinn samþykkir það. Ekki er gott að leyfa viðmælanda að fara offtherecord hvað eftir annað í einu viðtali.

Ef viðmælandi veldur erfiðleikum að þessu leyti, getur blaðamaðurinn þurft að segja, að viðtalið sé ónýtt, og því verði að slíta vegna þessa viðhorfs viðmælandans. Það er þá tekið fram, þegar birt er frétt um viðtalið.

Off-the-record kemur til geina, þegar verið er að safna gögnum. Það kemur ekki til greina, þegar viðmælandinn á að svara gagnrýni, sem fram hefur komið. Ef off-the-record hefur verið heimilað, þarf blaðamaðurinn að muna að fara aftur á “on”.

Vafasamt er, að rannsóknablaðamaður taki þátt í umræðusýningu í sjónvarpi í tilefni af grein, sem hann hefur skrifað. Ef blaðamaðurinn verður hluti af sjónarspili stjórnmálanna, verður þrasari, dregur það úr gildi góðrar vinnu hans.

Bloggsíður blaðamanna geta verið hættulegar, truflað starf þeirra við rannsóknir. Óþarfir utanaðkomandi hlutir trufla starf þeirra, af því að þeir kommentera í bloggi á verk sín á vinnslustigi. Menn eiga að forðast að taka þátt í þrasi á vefnum.

Rannsóknablaðamennska hér á landi hefur stundum spillzt af Vilmundsku, það er að segja, birtur er ósannreyndur leki og blaðamaðurinn lendir síðan í ritdeilu um lekann, sbr. Hafskip, Rannsóknanefnd sjóslysa. Góð rannsókn t.d. Árni Johnsen.

Rannsóknablaðamennska getur snúist um mál, sem ekki eru hrein lögbrot. Þá leggur blaðamaðurinn spilin á borðið og lesandinn eða hlustandinn metur sjálfur, hvort hann telji umfjöllunarefnið hafa hagað sér sæmilega eða ekki.

Innskot: Blaðamenn skapa sér eigin aðstæður. Það þarf blaðamann, allt annað er umgjörð. Tækifærin eru alls staðar. Fjölmiðlar eru gleymnir. Meiri þrautseigja í USA, sófablaðamennska hér. Hér gefast menn upp, ef þeir fá ekki skjöl í tölvupósti.

Tæknibylting gerir rannsóknablaðamennsku auðveldari núna.
Tölvur, farsími, númerabirting, forrit, gagnabankar, internetið.
Þá voru 12 menn í Watergate, nú mundu 3 duga.
Þá tók málið 13 mánuði, nú tæki það 3 mánuði.

Minna er sannreynt hér, er viðhorf almennings því neikvæðara?
Þrautseigja dugir ekki hér, afhjúpun hefur ekki afleiðingar. Viðbrögð stjórnvalda svipuð, leit að leka, hefnd. Pólitíkusar svara ekki, þegja í kaf. Minni kröfur til valdamanna. (Úr verkefni nr. 4)

Rannsóknafréttir fjölmiðla helgarinnar snúast báðar um eitt atriði, stjórnvalda fer ekki eftir settum reglum og lögum. Það er algengur vandi í stjórnsýslu hér, að ekki er farið þétt eftir bókinni. Íslensk stjórnsýsla svarar heldur ekki bréfum og finnur þau ekki.

Margt af því, sem hefur verið flokkað sem rannsóknir hér á landi, er það ekki, heldur slagsmálablaðamennska. Samanber Hafskip, þar sem leki var ekki sannreyndur og úr urðu slagsmál um, hvað væri satt. Fjölmiðillinn var vefengdur.

Þannig var líka Geirfinnsmálið. Því var slegið upp á forsendum leka eða slúðurs, en sannreynsla fór forgörðum. Málið varð að pólitískri þvælu. Blaðamenn verða að forðast að missa mál út í Geirfinns eða Hafskipsstíl. Árna Johnsen málið var miklu betra.

Eltið dollarann:
Framlög til kosningabaráttu eru opin í Bandaríkjunum og tilefni margra rannsókna. Fjáröflun er hornsteinn stjórnmálanna og hefur breytt eðli þeirra. Lögmenn og þrýstihópar hafa náð betri tækni og betri tökum á pólitíkinni.

Margir vasar: Harðir peningar renna til frambjóðenda, mjúkir peningar renna til stofnana, sem vinna óbeint í þágu þeirra, til dæmis með því að ná fólki á kjörstað eða til árása í auglýsingum á málefni mótframbjóðandans, neikvæðar auglýsingar.

Þrýstihópar (koma örugglega hingað):
Tíu reglur til árangurs í þrýstingi:
1. Þeir öðlast reynslu í þingi eða stjórnsýslu.
2. Þeir verða sérfræðingur í einu máli.
3. Þeir finna auðuga áhugamenn um framgang málsins.
4. Þeir virða ekki bann við flakki milli þrýstihópa, þings og stjórnsýslu.
5. Þeir safna fé handa þingmönnum.
6. Þeir gefa áhrifamönnum.
7. Gera bandalag við frægðarfólk.
8. Framleiða grasrótarhreyfingar.
9. Upplýsa eins lítið og hægt er.
10. Þeir endurnýja sambönd og frægð með því að fara aftur í stjórnsýslu, inn og út.

Ferðast menn, snæða á veitingahúsum, fara á ráðstefnur á vegum þrýstihópa? Er lífsstíll þingmanna dýrari en laun þeirra gera ráð fyrir? Hvaðan koma aukatekjur þingmanna? Hverjir eru skattar þingmanna? Hvað segja fyrrverandi starfsmenn?

Fjárlaganefnd:
Hvernig starfar hún? Hvernig er hagsmuna kjördæma gætt og svæða innan þeirra? Hvernig tekur hún á erindum utan úr bæ?
Aðrar þingnefndir: Sama. Hvað segja embættismenn, sem koma á fundi, þyrla þeir upp ryki?

Persónuleg mál:
Stundar þingmaðurinn framhjáhald og getur það haft áhrif á störf hans? Er tæpast mál hér á landi. Er ferilskrá hans ýkt? Eru fjárhagsleg samskipti hans gegnsæ?

Stofnanir: Hvert er hlutverk stofnunar og hversu vel gegnir hún því? Stofnanir eins og Persónuvernd eru ríki í ríkinu, gefa út tilskipanir. Hvernig er þetta vald hamið í kerfinu? Er hlaðið upp embættismönnum, sem eru á ferðum milli ráðstefna?

Spilling
Paul Williams: Gerðu ráð fyrir, að spillingaröfl séu á ferð í stofnunum, þótt flestir starfsmenn þeirra séu heiðarlegir. Sá meirihluti getur komið þér að gagni við að finna þau atriði, sem athugaverð eru í rekstri stofnunarinnar.

Lou Rose: Þú verður að þjálfa hugann til að samþykkja ekki allt eins og það lítur út fyrir að vera. Skrifaðu niður allt, sem hugsanlega getur verið ámælisvert og krossaðu við: Getur gerst, getur ekki gerst, er hugsanlegt, en get ég sannað það.

Í Baton Rouge voru tveir þriðju hlutar fjárhagslegra stuðningsaðila meirihlutans í beinum viðskiptum við borgarstjórnina eða stofnanir hennar. Frá margs konar rannsóknum af því tagi er sagt í þessum kafla.

Forstjórinn:
Þar er tónninn gefinn. Ótal bækur nefndar í bókinni. Er forsetinn, ráðherrann, sveitarstjórinn dugmikill eða duglaus, spilltur eða heiðarlegur? Talið við fólkið í kringum þessa lykilforstjóra þjóðfélagsins.

Embættismenn:
Leikur hann lausum hala? Hvað segja vélritarar og birgðaverðir? Þeir heyra margt, geta útvegað afrit af skjölum og eru ekki hlýðnir kerfinu, af því að laun þeirra og virðing eru neðst á skalanum. Virka ráðuneytin?

Gott er að komast yfir innanhússsímaskrár stofnana og fyrirtækja. Woodward og Bernstein mátu, hvernig númer mundu raðast á hæðir og þar með í virðingarstiga. Einkavæðing gefur mikil fréttaefni, í Bandaríkjunum hefur hún oft farið illa, t.d. í skólum.

Bókasöfn stofnana hafa oft að geyma mikilvægar upplýsingar. Hér á landi eru mörg slík söfn.
Sumar nefndir eru með embættismönnum og hagsmunaaðilum. Ráða hagsmunaaðilarnir þar ferðinni? Mikið er af slíkum nefndum hér.

Fjárveitingar:
Eyðir stofnun miklu síðustu daga ársins til að mæta tekjum og koma í veg fyrir niðurskurð á næsta ári? Hvernig fara sumar stofnanir kerfisbundið fram úr áætlun? Er lausafé stofnunarinnar á reikningi með góðum vöxtum?

Ekki bíða eftir útkomu fjárlaga. Ræddu við starfsmenn í ráðuneytinu og fagráðuneytum um atriði, sem eru mikilvæg. Ef gert er ráð fyrir tíu nýjum lögreglumönnum, finndu þá út, hvað hinir 200 lögreglumennirnir eru að gera.

Útboð: Eru öll verk samkvæmt útboði? Eru öll útboð auglýst? Er útboðið lagað að einu fyrirtæki? Kostar hamarinn 400 dollara? Hvernig er skilið milli lægsta tilboðs og “besta” tilboðs? Eru sendir reikningar fyrir viðbótarþjónustu? Algengt í virkjunum.

Sjá nánar:
Brant Houston, Len Bruzzese & Steve Weinberg,
The Investigative Reporter’s Handbook
A Guide to Documents, Databases and Technologies
4th Edition 2002

Fair Use © Jónas Kristjánsson, 2008

Hlé