Sporin rakin

Rannsóknir
Sporin rakin

Stundum er talað um, að blaðamaðurinn fari gegnum nokkra sammiðja hringi inn að kjarnanum í miðjunni. Hann bori sig utan frá og fari inn. Yst eru annars stigs heimildir og innra eru fyrsta stigs heimildir, innst er kjarni málsins.

Valið viðfangsefni rannsóknar:
Fréttaskot kemur frá gömlum vini eða óþekktum aðila. Birtar fréttir kalla á nánari útlistun. Röðun eða flokkun upplýsinga í gagnagrunni sýnir nýjan vinkil. Stundum er bara forvitni að verki.

Því miður reyna margir blaðamenn ekki við rannsóknir eða útreikninga af því að þeir eru vanir að taka gilda opinbera útgáfu frá heimildum, sem þeir vilja ekki styggja. Þeir eru ekki sjálfstæðir og verða ekki rannsóknablaðamenn.

Svona þarf ástandið ekki að vera. Bob Woodward byrjaði á vikublaði í Maryland og notaði venjuleg fréttaverkefni til rannsóknaverkefna. Þannig vann hann sig á venjulegum verkefnum inn á Washington Post og náði þar fullum þroska í Watergate.

Rannsóknartilgátan:
Það er öðru vísi að byrja með rannsóknartilgátu en með lokuðum huga.
Bestu rannsóknablaðamenn leita jafn eindregið eftir sönnunargögnum, sem hafna tilgátunni, og hinum, sem styðja hana.

Ytri hringurinn:
Annars stigs heimildir.
Þegar blaðamaður fer af stað í rannsókn, byrjar hann oft á upphafspunkti, sem felst í áður birtri frétt. Slík heimild er annars stigs heimild og leiðir oft til ýmissa grundvallarspurninga.

Skjalrænt hugarfar:
Annars stigs heimildir eru bestar, þegar þær leiða til fyrsta stigs heimildar í skjölum eða gagnabönkum. Slíkar heimildir eru víðar til en flestir halda, einkum eftir innreið veraldarvefsins.

Skjalrænt er það hugarfar, sem gerir ráð fyrir, að skjal sé til. Stofnanir og fyrirtæki og samtök skilja eftir sig pappírsslóð og gagnabankaslóð, rétt eins og sérhver einstaklingur gerir. Þessa slóð þarf blaðamaðurinn að rekja.

Mannlegar heimildir:
Of margir blaðamenn hafa aðeins samband við augljósar heimildir, sem eru nú við störf. Þeir gleyma hinum “fyrrverandi”, sem oft þora að segja meira, hafa fengið tíma til að hugsa og kunna að eiga skjöl.

Mikilvægt er að fresta lykilviðtölum til þess tíma, að pappírsslóðin hefur að mestu verið rakin. Úr henni koma spurningar fyrir viðtalið. Gögn geta líka aðstoðað við að meta, hvort viðmælandi segir ósatt eða er ekki nógu fróður.

Rannsóknatækni:
“Parallel backgrounding”: Upplýsingar úr pappírsslóð stofnunar veitir upplýsingar um starfsmann. Upplýsingar úr pappírsslóð starfsmanns veitir upplýsingar um stofnun.

“Indirect backgrounding”: Stórfelld upplýsingaöflun af framangreindu tagi. Farið er út fyrir stofnun og starfsmann yfir í samfélagið, hagkerfið, pólitíkina. Frá Teamsters og einstökum mafíósum er farið út í skilning á pólitíkinni.

Skipulag upplýsinga:
Ef upplýsingar safnast bara upp, verða þær óviðráðanlegar. Skynsamlegt er að meta þær oft og taka bráðabirgðaákvarðanir um, hverjar skipta máli. Þeim má raða upp í skipulagða og línulaga röð, til dæmis tímaröð.

Tímaröð er best að setja upp í töflureikni eða enn frekar í gagnagrunni. Með tímaröðinni er fljótlegra að finna ferli og tengsli. Allar upplýsingar þarf að meta að nýju meðan á rannsókn stendur og eftir sérhvert uppkast að frétt.

Séð gegnum viðurkennda visku:
Lítils virði eru góðar aðferðir við að safna upplýsingum, raða þeim upp og skrifa um þær, ef rökhyggja rannsóknarinnar er röng. Of margir taka viðurkennda visku eða félagslegan rétttrúnað sem góða og gilda vöru.

I. skref: Fæðing.
Leitin er endalaus. Hugmyndir eru alls staðar, í Lögbirtingablaðinu, í stjórnendaskiptum, í fréttabréfum, í fasteignaauglýsingum, í fyrirlestrum.

1. Einnota heimildir: Mikilvægar.
2. Viðvarandi heimildir: Nauðsynlegar.
3. Lestur: Dagblöð og veftímarit.
4. Fréttir: Þar eru spurningar, sem þarf að svara.
5. Aðrar sögur: Hliðargreinar.
6. Athyglisgáfa: Umheimurinn.

II. skref: Hagkvæmnisathugun.
1. Hvaða þröskuldar eru í veginum? Eru til skjöl? Mun fólk tala? Er tími aflögu?
2. Getur einn blaðamaður unnið verkið?
3. Eru neikvæðar hliðar? Tapar fjölmiðillinn auglýsingum, lesendum?
4. Er hægt að halda rannsókninni leyndri.

III. skref: Af eða á. Hver er lágmarkssagan, sem þú sættir þig við.
IV. skref: Lagður grunnur. Lærðu hvernig hlutur á að ganga.
V. skref: Skipulag
1. Hvernig verður upplýsingum safnað og þær flokkaðar?
2. Hver gerir hvað, hvenær? Gagnabankar. Upplýsingalögin.

VI. skref: Rannsóknin
1. Pappírsslóðin.
2. Fólksslóðin.
VII. skref: Endurmat
VIII. Fyllt í eyðurnar.
IX. Endanlegt mat.
X. Skrifuð frétt og endurskrifuð.
XI. Birting og framhaldsefni.

Mike Berens kannaði samhengi milli morða með því að fletta eftir leitarorðum upp í gömlum dagblöðum á vefnum og fann 60 sögur, þar sem fjallað var um morð á gleðikonum. Nokkur morðanna tengdust Interstate 71 brautinni.

Notkun dagblaða:
Gífurlegt magn gamalla frétta er á vefnum. Allt þarf það að fást staðfest á annan hátt með því að tala við upprunalegar heimildir. Annað efni dagblaða gagnast líka, svo sem slúður um frægðarfólk.
Gamlir Moggar fást á vefnum.

Gömul dagblöð á vefnum eru orðin svo umfangsmikil, að þar er óþrjótandi uppspretta verkefna í rannsóknablaðamennsku. Mikilvægari en aðrar annars stigs heimildir.

Notkun ljósvakamiðla:
Í seinni tíð er hægt að nálgast texta fréttatíma ljósvakamiðla og myndskeiðin einnig.
Fjölmiðlavaktin ehf safnar efni ljósvakamiðla eins og prentmiðla.
Erfiðara að fletta þar en á vefnum.

Í hestamennsku einni eru gefin út hér á landi tvö tímarit á prenti, nokkrir fréttavefir, nokkrar slúðurrásir, svo og safnbankar upplýsinga um ræktunarhross. Aðstandendur þessa efnis eru kjörnir viðmælendur rannsóknablaðamanna á þessu sviði.

Uppflettibækur:
Encyclopedia of Associations: Þúsundir samtaka. Á vefnum.
Aldrei gera ráð fyrir, að einhver sé ekki skráður. Útskriftarbækur skóla.
Stéttatöl á Íslandi. Fylla marga metra á ritstjórn DV.

Prófritgerðir:
Kandídatar fá oft betri aðgang að stofnunum, af því að þeir eru ekki taldir ógna tilvist þeirra eins og blaðamenn eru taldir vera. Því má oft sækja viðkvæmar upplýsingar í ritgerðir.
Íslenskt dæmi: Símahleranir.

Bækur og bókasöfn:
Bækur eru oft bestu heimildirnar. Atriðisorða og nafnaskrár þeirra eru mikilvægar, svo og heimildaskrár og viðaukar. Vanda þarf til leitarorða.

Viðskiptaheimurinn:
Lánstraust hf. vaktar fyrirtæki, vanskil, fjárnám, gjaldþrot, uppboð, innkallanir. Það veitir svipaðar upplýsingar frá systurfyrirtækjum erlendis.
Rannsóknablaðamenn þurfa að vera áskrifendur að þessu.

Ráðuneyti og stofnanir hafa oft eigin bókasöfn á sérhæfðum sviðum. Seðlabankinn er með mjög gott bókasafn um efnahagsmál. Mín reynsla er, að auðvelt sé að fá að gramsa í þessum söfnum, t.d. hjá Alþingi.
T.d. efni frá Fjölmiðlavaktinni.

Annars stigs heimildir um gagnabanka: Hundruð bandarískra dagblaða eru til í heild sinni á veraldarvefnum, einkum hjá Dialog, LexisNexis og Dow Jones. Directory of Online Databases skráir 5000 gagnabanka hjá 700 söluaðilum.

Leit í fullum texta gagnabanka er yfirleitt hentugri en leit eftir tilvitnunum. Sjáið til dæmis Fulltext Sources Online og Net.Journal Directory. Sumir gagnabankar eru ókeypis, en yfirleitt kostar aðgangur að bestu bönkunum háar fjárhæðir.

Fyrir rannsóknablaðamann er lífsspursmál að læra um stafræna gagnabanka, t.d. á netinu, því að þar er hægt að beita margs konar leitarskilyrðum, í stað þess að þurfa að einskorða sig við stafrófsröð ritaðra uppflettirita.

Í lifandi gagnabönkum geturðu notað margs konar flokkanir, ekki bara stafrófsröð, heldur tímaröð, uppfærsluröð, upphæðarröð og svo framvegis, svo og snúið allri flokkuninni á hvolf. Þú getur líka notað margar flokkanir í senn.

Internetið:
Veraldarvefurinn er framtíðin. Í mörgum tilvikum eru upplýsingar aðeins þar fáanlegar. Athugið þó, að nýjar upplýsingar eru oft ekki enn tengdar inn á leitarvélar. Lestu Help hvers gagnabanka.

Gagnabankaleit: Oft eru bókaverðir fljótari að átta sig en blaðamenn. Bókaverðir eru sérfræðingar í leit og leitarkerfum. Markviss leit sparar kostnað og sparar ruslið, sem fylgir ómarkvissri leit. Þrengja þarf leitarskilyrði nógu mikið, en ekki of mikið.

http://ursk.forsaetisraduneyti.is/
http://www.personuvernd.is/
http://www.fmr.is/
http://www.us.is/id/1072
http://www.islendingabok.is/
http://www.lexis.hi.is/
http://www.fmv.is/
http://www.lt.is/

Brant Houston, Len Bruzzese & Steve Weinberg,
The Investigative Reporter’s Handbook
A Guide to Documents, Databases and Technologies
4th Edition 2002

Fair Use © Jónas Kristjánsson, 2008

Hlé