Yfirvofandi landhernaður

Punktar

Lagatæknar Vesturveldanna þrautlesa kommusetningu í ákvæðum og skilmálum Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið er að finna leið til að ganga á land í Líbýu, framhjá samþykkt Öryggisráðsins. Hernaður úr lofti nægir ekki. Gaddafi er í sókn, þótt Vesturveldin ráði ofan jarðar. Herstjórar Gaddafis eru fljótari að skilja breyttar aðstæður en herstjórar Atlantshafsbandalagsins. Stríðið gegn Gaddafi er því komið í vítahring, sem er gamalkunnur frá Afganistan. Það vindur upp á sig, hring eftir hring. Í yfirvofandi landhernaði mun svo koma skýrt í ljós virðingarleysi Bandaríkjamanna fyrir erlendum mannslífum.