Wernerssynir og Sjóvá

Punktar

Wernerssynir voru svo ósvífnir, þegar þeir áttu Milestone, að þeir veðsettu bótasjóð tryggingafélagsins Sjóvá. Eins og að veðsetja fjöregg fyrirtækis. Eins og að lífeyrissjóðir veðsettu inneign lífeyrisþega. Bræðurna vantaði fé til að fjármagna græðgina og fundu það í bótasjóði, sem átti að tryggja skuldbindingar tryggingafélags. Vegna þessa rambar Sjóvá á barmi hruns. Það er ekki Wernerssonum að þakka, ef unnt verður að breyta rekstri Sjóvá þannig, að það geti staðið við skuldbindingar sínar. Þetta er dæmi um, að þar vex hvergi gras, þar sem útrásarvíkingar fóru eins og logi yfir akur.