Þjóðin hefur staðið saman í erfiðleikunum, sem hún hefur mætt að undanförnu. Síminnkandi þjóðartekjur hafa ekki leitt til verkfalla né annarrar almennrar sundrungar í þjóðfélaginu umfram það, sem tíðkast hér við venjulegar aðstæður. Meira að segja er unnt að halda því fram, að óvenju friðsælt hafi verið í stjórnmálunum að undanförnu.
Í vetur og vor stóð þjóðin andspænis vinnudeilum, sem mörgum virtust óleysanlegar. Svo fór þó, að þessar deilur leystust farsællega og án verkfalla í tveimur áföngum, sem tryggja þjóðinni vinnufrið út þetta árið. Samningamenn og sáttamenn sýndu mikinn dugnað og mikla ábyrgðartilfinningu við að hamra saman sættir.
Vandræðaskipin miklu, stóru togararnir, eru eina umtalsverða undantekningin frá þessu. Og við erum raunar ekki enn búin að bíta úr nálinni með útgerð þessara skipa, sem allir vissu fyrirfram, að engin leið væri að reka af neinu viti.
Vandamál stóru togaranna var orðið svo hrikalegt í vor, að útgerðarfélögin, sem flest eru bæjarútgerðir, töldu jafnvel ódýrara að láta skipin liggja bundin í verkfalli en að halda úti miklum taprekstri af veiðum.
Einnig þessi deila er nú leyst um síðir. Stóru togararnir eru nú að fara út. Þar með hverfur það litla atvinnuleysi, sem hefur verið í fiskvinnslustöðvunum, er tekið hafa við afla þessara skipa. Þar með hefur aftur náðst full atvinna í þjóðfélaginu.
Þótt verðbólguvandi og tekjurýrnunarvandi okkar sé meiri en flestra nágrannaþjóða okkar, erum við atvinnulega séð betur settir en flestir. Atvinnuleysi er orðið landlægt í nágrannalöndunum. 5% atvinnuleysi þykir ekki lengur teljast til tíðinda og sumar þjóðir horfa með hryllingi upp á þróun í átt til 10% atvinnuleysis.
Íslendingar fylgjast nú spenntir með þróun næstu mánaða. Verðlag útflutnings og innflutnings er ótryggt og þar með staða íslenzku.krónunnar. Það er ekki góður fyrirboði, að hún skuli nú vera seld á svörtum markaði á fjórðungi lægra verði en skráð gengi.
Ytri markaðsskilyrði munu ráða mestu um gengi þjóðarinnar á næstu mánuðum. Hinir nýgerðu kjarasamningar kunna að reynast við hæfi. Þeir kunna líka að hafa mjög slæm áhrif á atvinnulífið, ef hin ytri skilyrði halda áfram að versna. Og þeir kunna líka að reynast nægilega hóflegir til þess, að um næstu áramót myndist aðstæður til að bæta lífskjörin enn í nýjum samningum.
Um þetta er engu hægt að spá núna í byrjun sumars. Við vitum þó, að við höfum komizt yfir vinnudeilurnar án þess að búa okkur til nein augsýnileg sjálfskaparvíti. Við höfum sloppið við verkföll og atvinnuleysi.
Þjóðin þarf nú að nota þetta friðarástand sem bezt til að sameinast um farsæla útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur. Landhelgin verður væntanlega færð út í haust eða fyrri hluta vetrar og þá ríður á, að þjóðin standi saman í þeim brotsjóum, sem munu ríða á henni í kjölfar útfærslunnar.
Jónas Kristjánsson
Vísir