Þorvaldur Gylfason segir þetta í Fréttablaðinu í dag: “Sá sem neitar að leggjast inn á Vog, fær ekki leyfi fjölskyldunnar til að leigja sér herbergi á Hotel d’Angleterre.” Hann segir, að fyrir mörgum mánuðum hafi Norðurlond bent Geir Haarde á að leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Ennfremur hafi Gordon Brown þegar í apríl ráðlagt Geir að leita til sjóðsins. Oflæti Geirs hafi hindrað hann í að þiggja þessi góðu ráð. Í oflætinu var hann studdur af Davíð Oddssyni og frjálshyggjugaurunum, sem sögðu siglinguna vera fína. Svo þegar allt hrundi, átti Geir enga vini, hvorki í Bandaríkjunum né í Evrópu.