Vitræn tillaga um afnám hafta

Punktar

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, vill afnema gjaldeyrishöft á sex til níu mánuðum. Hann vill gera það í áföngum, bjóðast fyrst til að greiða krónurnar með töluverðum afföllum og síðan með sífellt minni afföllum, unz jafnvægi er náð. Hann vill, að skrefin verði tilkynnt með góðum fyrirvara og að allt ferlið liggi ljóst fyrir frá upphafi, þar á meðal dagsetningar. Þá geti allir krónueigendur spáð í spilin og hagað sér eftir því. Smám saman muni koma í ljós, hver sé raunveruleg staða krónunnar. Við þurfum að fá að vita það einhvern tíma. Ástæðulaust er að draga veruleikann von úr viti.