Vitlausu reglurnar

Punktar

Læknisfrú á Seltjarnarnesi sigaði á mig hundi úti við Snoppu, þar sem ég var í morgunhlaupi fyrir þrjátíu árum. Hundurinn gelti í sama tón og hún. Ég kærði hana fyrir lausagöngu hunds á varptímanum. Eiginmaður hennar þekkti mig úr menntaskóla. Hann hringdi í mig og bað mig um að falla frá kærunni. Ég sagði, að við skyldum gera díl. Þau mundu lofa að fara að reglum um hundahald á Nesinu og ég mundi falla frá kærunni. Það sagði hann ekki koma til greina. Reglurnar væru vitlausar, gerðar fyrir heimska fugla, og þau hjónin mundu aldeilis ekki fara eftir vitlausum reglum.