Vitfirring Landsbankans

Punktar

Hálf þjóðin stendur á öndinni yfir vitfirrtri framgöngu Landsbankans í málum Jakobs Valgeirs Flosasonar. Fyrirtæki hans skulduðu milljarða út og suður. Stím fékk tuttugu milljarða afskrifaða. JV ehf sjö milljarða afskrifaða, Ál ehf tvo milljarða og önnur félög Jakobs líklega tíu milljarða. Vitfirrtur Landsbankinn afhendir samt Jakobi einn milljarð króna í viðbót til að kaupa kvóta. Lengra er ekki hægt að ganga í rugli. Á sama tíma verða bankaráðherra og fjármálaráðherra að andæfa afskriftum íbúðaskuldara. Pólitíska kerfið er eins helsjúkt og vitfirrtur Landsbankinn hjá Steinþóri Pálssyni bankabófa.