Júlíus Sólnes prófessor bendir réttilega á, að tvisvar hefur vísitölugrunni íbúðalána verið breytt án eftirmála. 1989 og 1995. Bankar heimtuðu þá ekki skaðabætur af ríkinu. Því er fordæmi fyrir, að hægt sé að laga vísitölu án kostnaðar skattgreiðenda. Því legg ég til, að frá og með deginum í dag verði tekin upp fasteignavísitala í stað neyzluvísitölu á verðtryggðum íbúðalánum. Breytingin kemur ekki í einu höggi á lánastofnanir. Hún kemur smám saman á löngum tíma. Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir eiga að geta þolað það. Síðan þarf Alþingi að afgreiða lyklalög og gjaldþrotalög Lilju Mósesdóttur. Hratt.
