Vinstri grænar fæðingar

Punktar

Samkvæmt fréttum kvartaði Steingrímur J. Sigfússon ráðherra i flokksráði Vinstri grænna yfir fjölmiðlum. Þeir skrifi meira um yfirvofandi landflótta en um miklar barnsfæðingar. Ég skil hann ekki. Er hann að þakka sér fæðingar eða hvað? Gerði hann eða flokkur hans eitthvað fyrir níu mánuðum, sem leiðir til barnsfæðinga núna? Af hverju ber hann þetta saman við landflótta, sem stafar af vantrú á framtíð samfélagsins? Eru barnsfæðingar vinstri grænum að þakka? Er þetta einhver röksemdafærsla, sem fer vel í vinstri græna? Er nú ekki komið nóg af hefðbundnu, pólitísku bulli, þarf líka að bæta þessu við?