Vinstri græna innanhúskróníkan

Punktar

Gaman er að, hversu pirraðir Steingrímur Sigfússon og Björn Valur Gíslason eru á franska evrópuþingmanninum Alain Lipietz. Er hann þó vinstri grænn eins og þeir og vinur Evu Joly, sem líka er vinstri grænn evrópuþingmaður. Nýjasta sveit stuðningsmanna íslenzkra hagsmuna í Evrópu er skipuð vinstri grænum stjórnmálamönnum og hagfræðingum. Hafa áhuga á IceSave, því að þeir eru andvígir ástum ríkisstjórna og græðgisbanka á kostnað skattgreiðenda. Telja IceSave vera gott sýnishorn af slíkum ástum. Gegn þessum vinstri grænu álitsgjöfum stendur fast fyrir brezk ríkisstjórn bankaástar og græðgishyggju.