Vinstri fasismi

Punktar

Þótt fasismi sé almennt skilgreindur yzt á hægri jaðri stjórnmála, er líka til eins konar vinstri fasismi. Félagsfræðingurinn Jürgen Habermas hefur til dæmis notað þetta hugtak í mótsögn við vinstra frjálslyndi. Vinstri fasismi er hrein valdshyggja á vinstri jaðri, áhugi á að ná vinstri markmiðum með valdbeitingu. Gott dæmi um það er stefna meirihluta borgarstjórnar í skipulagi Reykjavíkur. Reynt er að þvinga fólk úr einkabílum upp í strætó eða helzt á reiðhjól með því að þrengja götur og fækka bílastæðum. Samkvæmt því er Hjálmar Sveinsson vinstri fasisti.