Fyrir mörgum áratugum var pólitíska umræðan ekki skárri en núna. Frægur var flutningur umræðunnar austur á Volgubakka. Hægri menn fóru jafnan að tala um Sovétríkin, ef vinstri menn gagnrýndu eitthvað á Íslandi. Þessi útgáfa af rökleysu er gengin aftur með Guðmundi Franklín Jónssyni. Menn benda á, að ekki sé eitt grænt orð í ályktunum hins Hægri græna flokks hans. Hann svarar með því að segja álitsgjafana vera kommúnista og að mengun sé í fyrrverandi Sovétríkjunum. Getur ekki svarað málefnalegri gagnrýni og bregzt við á þann hátt. Einkaflokkur Guðmundar Franklín á auðvitað heima austur á Volgubökkum.