Vilja áfram varnarlið

Greinar

Meirihluti þjóðarinnar er sem fyrr fylgjandi því, að varnarliðið á Keflavíkurflugvelli verði hér áfram enn um sinn, að minnsta kosti fram yfir lok kjörtímabilsins. Þetta kemur fram í skoðanakönnun, sem sagt er frá hér í blaðinu í dag.

Þessi meirihluti er í þetta sinn að vísu minni en oftast áður. Vísir hefur fimm sinnum á undanförnum sex árum spurt úrtak þjóðarinnar um skoðanir þess á dvöl varnarliðsins. Aðeins einu sinni áður hefur meirihluti stuðningsmanna varnarliðsins verið naumari, árið 1970.

Þessi rýrnun meirihlutans kann að benda til þess, að harkan í landhelgisdeilunni hafi haft áhrif á afstöðu sumra manna til varnarliðsins. Þjóðviljanum hafi að nokkru, en takmörkuðu leyti tekizt að snúa óvinsældum Breta upp á varnarliðið og Atlantshafsbandalagið.

Sé þetta skýringin, ætti varnarliðinu nú aftur að eflast fylgi, þegar friðarsamningur við Breta er á næsta leiti. Skoðanakönnunin var framkvæmd, þegar brezki flotinn var enn á miðunum og óvinsældir Breta voru í hámarki. Þá kvörtuðu margir um, að Atlantshafsbandalagið gerði lítið til að fá Breta til að slaka á hörku sinni. Nú þakka hins vegar margir bandalaginu fyrir milligöngu í málinu.

Rýrnun meirihlutans kann líka að stafa af því, að farið er að ræða af meiri alvöru en áður um annað form á hernaðarlegum rekstri Keflavíkurflugvallar. Völlurinn verði áfram hlekkur öryggiskeðju Atlantshafsbandalagsins, án þess að hér verði beinlínis varnarlið. Jafnframt taki Ís lendingar þennan hernaðarlega rekstur að einhverju leyti í sínar hendur.

Alþýðuflokkurinn hefur haldið fram hugmynd um um þetta efni. Og Einar Ágústsson virðist hafa tekið þær upp í síðustu viðræðum sínum við bandarísk stjórnvöld um framtíð varnarliðsins. Í fljótu bragði virðast þessar hugmyndir vera draumórakenndar, þótt sjálfsagt sé að kanna þær ofan í kjölinn.

Að svo miklu leyti sem þessir draumórar eru skýringin á rýrnun meirihluta varnarliðsins ætti frekari þróun þjóðarálitsins að fara eftir því hvort þessir draumórar reynast vera raunhæfir við nánari athugun. En hinu mega menn ekki gleyma, að þrátt fyrir allt er enn meirihluti fyrir framhaldi á dvöl varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Það er meginniðurstaða skoðanakönnunarinnar.

Í þessari niðurstöðu felst viss aðvörun til utanríkisráðherra. Verkefni hans er ekki að finna leið til að samræma varnarleysi Íslands og öryggiseftirlit á Norður-Atlantshafi. Mikill hluti þjóðarinnar vill, að í þessari samræmingu sé einnig rúm fyrir varnir Íslands. Og margir telja þessar varnir raunar þegar orðnar of litlar.

Auðvitað kann svo að fara, að Bandaríkjamenn telji sér hvorki skylt né kleift að halda úti varnarliði á Íslandi. Við þurfum að búa okkur undir þann möguleika. En niðurstaða skoðanakönnunarinnar bendir til þess, að við eigum ekki að hafa frumkvæði að brottför varnarliðsins.

Jónas Kristjánsson

Vísir