Vilhjálmur vælir

Punktar

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmson hefur uppgötvað ógæfu sína. Hún er fjölmiðlun. Hann telur fjölmiðla hafa leikið sig grátt í vetur. Hvurslags væl er þetta. Maðurinn er búinn að vera í pólitík frá ómunatíð og virðist samt þurfa áfallahjálp vegna fjölmiðla. Flestum er ljóst, að vandræði Vilhjálms eru heimatilbúinn. Hann var fyllilega einfær um að koma sér sjálfur í sinn vanda. Hann skrifaði upp á spilaborgir í viðskiptum án þess að skilja neitt í þeim. Kennir svo sögumanni um ótíðindin. Kannski kærir hann þá. Dómstólar hafa gefið grænt ljós á kærur á þeim forsendum einum, að fólki líði illa.