Að baki Bjarna Benediktssyni mun flykkja sér áhugafólk um framgang iðnaðar, verzlunar og þjónustu. Viðskiptalífs-kjarni Sjálfstæðisflokksins mun taka völd í flokknum. Og færa honum að nýju hlutverk málsvara atvinnulífsins. Þemað verður friður til lántöku og viðskipta í útlöndum. Um Davíð Oddsson mun flykkjast þjóðrembdur íhaldsarmur flokksins með önnur kjarnagildi. Sumpart endurspeglar þetta uppruna flokksins í eldri Íhaldsflokknum og Frjálslynda flokknum. Sá, sem heldur nafni flokksins, verður sigurvegari. Hjá svo ótalmörgum er Flokkurinn leiðtogi lífsins, skítt veri með stefnuna.