Nýlega skýrði Dagblaðið frá því, að varðskip hefði verið sent eftir drukknum ökumanni, sem hafði sloppið undan lögreglunni á Patreksfirði og flúið á bát út á sjó. Fréttin var staðfest af Landhelgisgæzlunni. Lögreglan á Patreksfirði þóttist hins vegar ekkert við málið kannast.
Börnum er kennt að segja satt og ljúga ekki, hvorki í stóru né smáu. Sumir fullorðnir virðast hafa gleymt því, ekki aðeins pólitíkusar, heldur einnig embættismenn á ýmsum stigum kerfisins. Dæmið um lygina á Patreksfirði er bara lítið, en nýlegt sýnishorn af ótal slíkum, sem Dagblaðið hefur upplýst.
Nýlega skýrði Dagblaðið frá því, að yfirvald í Kópavogi héldi því blákalt fram, að útilokað væri að loka í bænum opnu klóaki, sem börn léku sér stundum í. Frárennslislögnin var opin vegna gatnagerðar, sem gekk afar hægt.
Parkinsons- og Péturslögmálin hafa leikið grátt mörg embætti hér á landi. Yfirvöldum vex í augum að framkvæma einföldustu og nauðsynlegustu öryggisaðgerðir í heilbrigðismálum. Dæmið um doðann í Kópavogi er bara lítið, en nýlegt sýnishorn af ótal slíkum, sem Dagblaðið hefur upplýst.
Nýlega skýrði Dagblaðið frá, og birti myndir til sönnunar, að lögreglan í Reykjavík lægi í leyni við greiðfærasta og hættuminnsta kafla gatnakerfisins, við Elliðaárvog, til að klekkja á venjulegum bílstjórum, einmitt þegar akstursskilyrði eru bezt.
Auðvitað á lögreglan fyrst að hafa eftirlit með of hröðum akstri við erfið skilyrði, t.d. vegna veðurs, þröngra gatna og nálægðar gangandi fólks. Að því eftirliti fullnægðu, getur lögreglan farið að hafa afskipti af meinlausari akstri, en tæpast fyrr. Dæmið um meinsemina í Reykjavík er bara lítið en nýlegt sýnishorn af ótal slíkum.
Nýlega skýrði Dagblaðið frá því, að gjaldeyrisyfirvöld hefðu varpað þægilegri hulu bankaleyndar yfir skrá sérstakra gæðinga, sem lifa á því að fá úthlutað gjaldeyrisleyfum fyrir kexi og sælgæti, til að selja þau síðan raunverulegum fyrirtækjum í innflutningi og verzlun.
Að sjálfsögðu á það ekki að vera í verkahring embættismanna að láta töskuheildsala flaðra upp um sig og herja út gjafir í skjóli bankaleyndar, heldur á verzlun að vera frjáls á þessu sviði sem öðrum. Dæmið um verndun gæðinga í ríkiskerfinu er bara lítið en nýlegt sýnishorn af ótal slíkum, sem Dagblaðið hefur upplýst.
Nýlega skýrði Dagblaðið frá því, að forstöðumaður tryggingaeftirlitsins neitaði að framkvæma ný lög frá alþingi um, að tryggingar innlendra fyrirtækja hjá erlendum aðilum skuli vera háðar undanþágum. Dagblaðið hafði á reiðum höndum dæmi um, að þessi lög voru brotin.
Lög eru auðvitað misjöfn að viti og gæðum. En embættismenn eru ekki ráðnir til að úrskurða, hvaða lög alþingis séu með viti. Þeir eiga ekki að ráða því sjálfir, hvaða lögum þeir framfylgja. Dæmið um hrokann í embættiskerfinu er bara lítið en nýlegt sýnishorn af ótal slíkum, sem Dagblaðið hefur upplýst.
Við gætum nefnt fleiri flokka vandamála, sem þarf að upplýsa og Dagblaðið er alltaf að upplýsa. Hér er t.d. ekki tími til að rekja nýleg dæmi um valdníðslu, sem blaðið hefur fjallað um.
Þessi fjölmiðlun til fólksins í landinu er svo mikilvæg, að þrátt fyrir vinnudeilu í prentiðnaði kom Dagblaðið út og varð að koma út, bæði í Reykjavík og víðs vegar um land.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið