Við öflum meira en við eyðum

Punktar

Vöruskiptajöfnuður við útlönd er jákvæður um tíu milljarða króna á mánuði, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár. Þjónustujöfnuðurinn er líka jákvæður um tíu milljarða króna á mánuði. Þetta þýðir á íslenzku, að þjóðfélagið aflar meiru en það eyðir. Íslendingar eru að græða. Eru búnir að vera að græða í tvö ár eftir hrun. Miklu máli skiptir sjávarútvegurinn, en ferðaþjónusta er ört vaxandi gróðafyrirrtæki. Samgöngur og ferðaþjónusta skila afgangi upp á tíu milljarða á mánuði. Þetta sýnir, að við erum sem þjóð eða fyrirtæki að sigla hraðbyri til framtíðar. Þótt sumir pólitíkusar hafi allt á hornum sér.