Össur Skarphéðinsson ráðherra er sagður hafa tjáð Dominique Strauss-Kahn, að IceSave komi Alþjóða gjaldeyrissjóðnum ekki við. Það var gott hjá Össuri, en tæpast merkileg fyrirsögn. Athyglisverðara hefði verið að frétta viðbrögð forstjóra sjóðsins. Við höfum margsinnis fengið upplýst, að lán frá sjóðnum eru háð samkomulagi við IceSave. Þess vegna viljum við vita, hvers vegna sjóðurinn lætur þetta koma sér við. Hvers vegna sjóðurinn er handrukkari fyrir Bretland og Holland. Hvers vegna sjóðurinn reynir þannig að rýra greiðslugetu Íslands. Betra hefði verið, að Össur flytti svör Strauss-Kahn.