Við allar hliðar borðsins

Punktar

Tryggvi Þór Herbertsson kvartar sáran yfir góða fólkinu, sem valtar yfir hans lið á veraldarvefnum. Segir það stjórna umræðunni. Rétt hjá Tryggva. Hins vegar er ekki rétt, að vandamál þjóðarinnar séu að einhverju leyti þessu góða fólki að kenna. Þau eru undantekningarlaust Sjálfstæðisflokknum og Tryggva Þór að kenna. Bjuggu til einkavinavæðingu og eftirlitsleysi og græðgishyggju. Tryggvi Þór átti áberandi þátt í hruninu, sat þar við allar hliðar borðsins. Var klappstýra, spilafíkinn bankastjóri, ráðgjafi Geirs og gráðugur sjálfur í peninga. Kvartanir hans sýna, að við erum á réttri leið.