Vettlingatök á kúlulánafólki

Punktar

Kúlulánafólk er græðgisfólk, sem vildi fá stóran pening fyrirhafnarlaust, fyrir ekki neitt. Þetta er fjölmennari stétt en áður var talið. Felur í sér varaformann Sjálfstæðisflokksins, bankastjóra Íslandsbanka og forstjóra Bankasýslu ríkisins. DV birti í morgun nöfn nokkurra slíkra, sem bankarnir hafa ráðið í mikilvæg störf og stjórnir. Listinn sýnir, að gamla spillingin stýrir bönkunum enn. Þar heimtar græðgisfólkið aftur bónusa eins og ekkert hafi gerzt. Stöðvar gagnsæi og felur sig að baki bankaleyndar. Vettlingatök Gylfa Magnússonar á kúlulánafólki eru dæmi um misheppnaða siðvæðingu banka.